fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Fanntófell flutt í nýtt og glæsilegt húsnæði

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 13. janúar 2019 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tímamót urðu í sögu Fanntófells fyrir skömmu er fyrirtækið flutti höfuðstöðvar sínar að Gylfaflöt 6–8 í 112 hverfinu í Reykjavík. Þar hefur jafnframt verið tekinn í notkun nýr og glæsilegur sýningasalur. „Hagræðingin við flutninginn er mikil, framleiðslutími styttist og öll aðstaða fyrir starfsmenn er betri. Þá er aðkoma fyrir viðskiptavini miklu betri. Með nýjum og stærri sýningarsal getum við núna sýnt allar framleiðsluvörurnar,“ segir Sigurður Bragi Sigurðsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins.

Fanntófell sérhæfir sig í framleiðslu á borðplötum, skilrúmum, búningsklefaskápum, sólbekkjum, skápa/skúffu prófílum og fleiru, úr harðplasti, Fenix, límtré og akrýlsteini. Sérhæfing Fanntófells frá stofnun 1987 er formbeyging á köntum á harðplastplötum en einnig framleiðir fyrirtækið plötur með beinum kanti í m.a. viðarkant, pvc-kant og laserkant.

Fanntófell framleiðir bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga og þá gjarnan í samstarfi við arkitekta, hönnuði og verktaka. Einnig er boðið upp á uppsetningarþjónustu og mælingu.
Mikið úrval er af efni, litum og áferðum sem er hægt að skoða í sýningarsalnum að Gylfaflöt.

„Fólk kaupir oft innréttingar annars staðar en kaupir síðan borðplöturnar hjá okkur. Einnig kemur oft fólk til okkar sem er að endurnýja borðplötur hjá sér, enda er algengt að skipta um borðplötur þegar flikkað er upp á eldhús. Við erum einnig farin að sérsmíða hurða- og skúffuprófíla eftir máli, þar sem fólk getur skipt út,“ segir Sigurður.

Einn helsti kosturinn við þau efni sem Fanntófell vinnur með við sína framleiðslu er hvað þau eru slitsterk og endingargóð. Harðplast er mikið notað í eldhúsborðplötur og almennt í eldhúsinnréttingar.

„Akrýlsteinninn er reyndar líka vinsæll en hann hefur endalausa möguleika í hönnun. Samskeyti eru lítt sýnileg og hægt að undirlíma vaska úr sama efni í plöturnar. Fenix er líka áhugaverður kostur þar sem áferð á plötunum er silkimjúk og efnið hrindir betur frá sér óhreinindum en önnur sambærileg efni,“ segir Sigurður.

Hann segir mikla þróun vera á þessu sviði og reglulega komi fram spennandi nýjungar: „Nýjungar hjá okkur eru veggklæðningar frá Rehau og hurðaprófílar sem við smíðum eftir máli. Við stækkun á húsnæði er líka tilvalið að bæta við sig vöruflokkum.“

Fanntófell flytur inn glugga, álglugga, tréglugga og áltréglugga. Þessa sömu glugga gefur að líta í öllu húsnæði fyrirtækisins að Gylfaflötinni. Og nýjung á byggingarmarkaði er 2 Stone gas silica hleðslusteinar fyrir útveggi, milliveggi o.fl. Helstu kostir þeirra eru að þeir eru myglufríir, hljóð- og hitaeinangrun er mjög góð og þetta er auðvelt í uppsetningu. Sjá nánar http://www.2stone.is/

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum