Poulsen er eitt af elstu starfandi fyrirtækjum landsins, hvorki meira né minna en 109 ára gamalt. Rekstur fyrirtækisins er nokkuð margþættur en þungamiðja starfseminnar er innflutningur á bílavarahlutum, bílrúðum, bílalakki, smurolíum og iðnaðarvarningi. Ávallt er þess gætt að bjóða eingöngu hágæðavöru frá traustum framleiðendum.
Meðal þess eru sjálfvirkir smurskammtarar frá Perma tec en þeir eru framleiddir í Þýskalandi. Perma tec fann upp fyrsta sjálfvirka smurskammtarann árið 1964 og hefur alla tíð síðan verið leiðandi á þessum markaði.
Allir Perma tec-smurskammtararnir eru fylltir af feiti eða olíu í verksmiðjunni, en þar er fyllsta hreinlætis gætt svo engin óhreinindi geti mengað framleiðsluvöruna. Auk þess fer engin olía eða feiti í hylkin nema að hafa staðist ýtrustu kröfur framleiðandans.
Fimm gerðir af hágæða smurskömmturum
Perma tec framleiðir fimm gerðir af smurskömmturum: Classic, Future, Star, Nova og Flex.
CLASSIC er sá upprunalegi en FUTURA sá endurbætti sem vinnur á sama hátt, það er að í hylkinu er mild sýra sem vinnur á töflu sem skrúfuð er í hylkið og við það myndast gas. Gasið þenst út og dælir þannig feitinni út í leguna. Þeir koma í einni stærð, 120 cm³. Tapparnir endast í 1, 3, 6 eða 12 mánuði.
STAR vinnur á allt annan hátt, en í honum er lítill rafmótor sem skrúfar niður stimpil og dælir feitinni þannig út. Þeir eru fáanlegir með rafhlöðum eða tengingu í stýrisstraum frá tækinu. Val er um 3 stærðir 60, 120 og 250 cm³. Stillanlegur á 1 til 12 mánaða endingu. Hann blikkar líka grænu ljósi ef allt er í lagi, en rauðu ef eitthvað er að.
NOVA kemur á markað til að uppfylla óskir kaupenda um jafna virkni við mismunandi hitastig. Hvort heldur sé 20° frost eða 60° hiti, þá er hann með innbyggðan hitanema sem stjórnar gasmynduninni. Virknin er sú að litlum neista er skotið í kolakjarna og við það myndast gas. Fæst í tveimur stærðum, 65 og 125 cm³. Stillanlegur á 1 til 12 mánaða endingu.
FLEX er nýjasta afurðin og kemur væntanlega í staðinn fyrir CLASSIC og FUTURA. Virknin er sú að litlum neista er skotið í kolakjarna og við það myndast gas.
Hann fæst í þremur stærðum, 30, 60 og 125 cm³. Stillanlegur á 1 til 12 mánaða endingu.
Margar tegundir af feiti og olíu
Hægt er að velja um ýmsar feiti- og olíutegundir, en þær eru helstar:
SF01 Universal feiti Li/Ca NLGI 2 -30 til +130°C
SF02 Extream Pressure Li+Mos2 NLGI 2 -30 til +120°C
SF03 High temp Polyurea NLGI 2 -20 til +220°C
SF10 Food grade H1 Al-Com NLGI 1 -45 til +120°C
SO14 Chain oil PAO+Este -20 til +250°C
Einnig er hægt að sérpanta aðrar tegundir og er Perma tec með mikið úrval á lager.
Perma tec smurskammtararnir henta sérlega vel til að smyrja t.d. rafmótora, dælur, loftblásara, færibönd, snigla og keðjur.
Mikið úrval er af aukahlutum, t.d. minnkanir, framlengingar, festingar og burstar
Perma tec-smurskammtararnir eru seldir í verslun Poulsen í Skeifunni 2, Reykjavík. Sjá nánar um starfsemi Poulsen á vefsíðunni poulsen.is