Á Janúarútsölu Tölvulistans er allt að 50% afsláttur af yfir 1000 tölvuvörum.
Frábært verð á fartölvum, tölvum, skjám, skjákortum, netbúnaði og öðrum flottum tölvuvörum. Þar á meðal er allt að 46% afsláttur af skjávörpum frá Epson.
Epson skjávarpar fyrir kennslustofuna
Skjávarpar eru tilvaldir fyrir skólastofur, fundarherbergi og önnur rými þar sem myndefni getur haft meira pláss en fæst á venjulegum skjá. Epson merkið þekkja flestir enda er Epson leiðandi framleiðandi í skjávörpum í heiminum. Epson hefur verið númer 1 í skjávörpum síðan árið 2001*. 3LCD tækni Epson gefur forskot á gæði og liti þegar kemur að myndinni þar sem allir grunnlitir varpans geta náð uppgefnu birtustigi. Flestir skjávarpar Epson ná 100“ mynd en hún er yfir 2 metrar á breidd og 1 metri á hæð, svo þeir henta vel fyrir allar stærðir af rýmum, jafnt lítil fundarherbergi og stóra fyrirlestrasali.
Epson skjávarpar fyrir heimilið: Bíó heima í stofu
Einnig framleiðir Epson skjávarpa fyrir heimilið með Wifi og Miracast möguleika. Jafnframt hefur ending á skjávarpaperum orðið mun betri síðustu ár og líftími lengst svo um munar. En á mörgum Epson skjávörpum er líftími perunnar allt að 10 ár.
46% afsláttur á Epson skjávarpa
Dæmi um flottan skjávarpa á góðu útsöluverði er Epson EB980, en hann er á 46% afslætti á útsölu Tölvulistans. EB980 skjávarpinn er með peru með langan líftíma sem býður jafnframt upp á mikla birtu. Auk þess þarfnast pera og loftfilter lítillar umsjónar.
Myndin sem EB980 skjávarpinn varpar er björt, litsterk og skýr sem tryggir að allir sjái greinilega á skjáinn. Myndina má stækka upp í allt að 7 fermetra og gæði myndarinnar haldast jafnvel í vel lýstu rými þar sem skjávarpinn hefur 3.800 lumens og 15.000:1 hlutföll í skerpu.
Með þráðlausum lykli má bæta við WiFi tengingu á skjávarpann og þannig tengjast auðveldlega við snjalltæki og tölvur ásamt því að skjánum má skipta til þess að sýna efni úr fleiri tækjum samtímis.
Nánari upplýsingar á www.tl.is
*Samkvæmt Futuresource Consulting
Sjá meira hér á epson.co.uk