Jóhann Helgi Hlöðversson er lærður skrúðgarðyrkjumeistari og stofnaði fyrirtækið Jóhann Helgi & Co. árið 1990. Allt frá árinu 1994 hefur fyrirtækið sérhæft sig í innflutningi á útileiktækjum og öllu sem viðkemur leik- og íþróttasvæðum. „Hjá okkur starfa vaskir sveinar við uppsetningu og viðhald á leiksvæðum víðsvegar um landið,“ segir Jóhann.
Allt fyrir leikvöllinn
Vöruflokkarnir hjá Jóhann Helgi & Co eru margir og mismunandi. Þar má til dæmis nefna útileiktæki, girðingar, gúmmíhellur, gervigras, útihúsgögn, hjólabrettarampa og margt fleira. „Við erum einnig með endurunnið plast frá þýskalandi en sá framleiðandi er með mikið úrval af alls kyns vörum sem henta við ýmsar aðstæður. Þá eru þeir með til dæmis grasstein, borð og bekki, girðingastaura, og margar stærðir af plastborðum úr endurunnu plasti.“
Eru með vörur fyrir búskapinn
„Einnig erum við að þjóna bændum og búaliði með ýmislegt í fjósin og á túnin. Þá bjóðum við upp á bása- og drenmottur, girðingastaura ofl. Bændur hafa einnig verið hrifnir af því að nota gegnheilt plast í stærðinni 3x6cm í fjárhúsgólf með frábærum árangri.“
Nánari upplýsingar og myndir má nálgast á vefsíðunni johannhelgi.is
Netpóstur: jh@johannhelgi.is
Sími: 565-1048 og 820-8096