fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Ekta marokkóskur matur og stemning á Kasbah Café

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Sunnudaginn 16. júní 2019 16:00

Mohamed Nadhir, eða Simo eins og hann er alltaf kallaður.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Veitingastaðurinn Kasbah Café er nefndur í höfuðið á kasbah, sem er samheiti yfir virki í kringum borgir í Marokkó. Yfirleitt eru þau í einkennandi rauðum lit enda unnin úr marokkóskum leir. Svo gnæfa alla jafna tveir turnar yfir borgina. Á veitingastaðnum Kasbah Café er stemningin næstum eins og að koma inn í marokkóska borg. Allir innviðir þar eru hannaðir af Hafsteini og Karítas hjá Haf Studio og handgert úti í Marokkó fyrir staðinn og kallast litirnir inni á staðnum á við hin mikilfenglegu Kasbah-virki.

Tengingar til Marokkó

„Við fjölskyldan berum mjög sterka þræði til Marokkó enda kem ég frá Marokkó,“ segir Mohamed Nadhir, eða Simo eins og hann er alltaf kallaður. „Við hjónin, Harpa B. Nadhir Bragadóttir, rekum staðinn saman, en hún er annars í fullu starfi hjá Mannvit, verkfræðistofu og hjá Kasbah Café í hjáverkum. Strákurinn okkar, Kristófer Karim, þjónar svo til borðs hjá okkur en þetta er sannkallað fjölskyldufyrirtæki.“ Simo hefur búið samtals í tuttugu ár á Íslandi en fjölskyldan bjó saman úti í Marokkó í þrjú ár fyrir nokkrum árum síðan. „Fyrst vorum við í Marrakech og svo í Casablanca, þaðan sem ég kem. Menningin þarna úti er einstök og síðan við fluttum aftur til Íslands hefur okkur dreymt um að opna veitingastað með marokkósku ívafi og kynna Íslendingum fyrir menningunni, stemningunni og auðvitað matseldinni þarna úti. Við opnuðum loks veitingastaðinn núna helgina 1. og 2. júní, en Kasbah er eini marokkóski veitingastaðurinn í Reykjavík. Þetta hefur gengið vonum framar enda er veðrið búið að leika við matargesti okkar.“

 

Hægeldaðir réttir í leirpottum og marokkósk léttvín

Marokkóskir réttir eru mikið til eldaðir í sérstökum leirpottum sem kallast tagine. Þá er kjöt og grænmeti hægeldað og látið malla í eigin safa með alls konar framandi kryddum. „Útkoman er alveg himnesk. Marokkóskir réttir eru ekki sterkir þótt þeir séu kryddaðir. Þjóðarréttur Marokkóbúa er svo kúskús og ásamt tagine-réttum erum við með kúskús-rétti á matseðlinum.

Allt léttvínið okkar kemur frá Marokkó. Marokkó var frönsk nýlenda og er frönsk menning því mjög samtvinnuð marokkóskri menningu og hefur smitast meðal annars út í vínframleiðsluna. Vínin okkar koma frá Domaine De la Zouina sem framleiðir dýrindis rauðvín, hvítvín, gris og rósavín í hæsta gæðaflokki. Einnig erum við með briouates-smárétti. Það eru djúpsteiktar upprúllaðar deigþynnur með ýmiss konar girnilegum fyllingum sem henta bæði sem forréttir eða smáréttir.“

„Kokkarnir okkar koma frá Marokkó og eru algerir snillingar í eldhúsinu. Marokkósk matseld er afar fjölbreytt og við erum enn að fínpússa matseðilinn. Okkur langar að vera með nokkra fasta rétti, og svo vera með breytilega rétti sem við auglýsum á Facebook-síðunni okkar, Kasbah Café Reykjavík. Því er um að gera að fylgjast með okkur þar og koma með uppástungur ef það eru einhverjir réttir sem þið viljið sjá á matseðlinum.“

„Marokkóska myntuteið sem fæst hjá Kasbah Café fer ekki fram hjá neinum sem hefur komið til Marokkó og er alveg himneskt, jafnvel fyrir þá sem segjast ekki drekka te. Svo erum við líka með kökur sem við gerum sjálf, m.a. geggjaða sítrónuböku sem passar svona líka vel með myntuteinu.“

Paradís á sumardegi

„Ég mæli eindregið með því að sitja úti í sólinni á útisvæðinu okkar, fá sér briouates og sötra á góðu marokkósku rósavíni með. Útisvæðið okkar tekur allt að 20 manns í sæti og er þar gott skjól og sólríkt. Þetta er alger paradís á góðum sumardegi,“ segir Simo og býður gesti og gangandi velkomna í ekta marokkóska stemningu á Kasbah Café.

Kasbah Café er staðsett að Geirsgötu 7b, 101 Reykjavík.

Sími: 588-8484

Facebook: Kasbah Café Reykjavík

Instagram: kasbahcafereykjavik

Heimasíða: kasbah.is

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum