fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Frisbígolf: Kannt þú að kasta frisbídiski?     

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Fimmtudaginn 18. apríl 2019 16:00

Árni og Benedikt, starfsmaður í Frisbígolfbúðinni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frisbígolf er ein mest vaxandi íþrótt í Evrópu í  dag. Á Íslandi stunda nú 15–20.000 manns íþróttina og iðkendum fer ört fjölgandi. Á þessu ári má ætla að haldin verði yfir hundrað frisbígolfmót um land allt. Eitt þeirra er alþjóðlegt risamót! „Iceland Solstice“, og verður það haldið ​í Garðabæ á Vífilsstöðum​ og Guðmundarlundi í Kópavogi. „Ætlun okkar er að stækka völlinn á Vífilsstöðum í 18 körfu völl í samvinnu við Garðabæ. Mun mótið verða hið glæsilegasta sem við höfum haldið og búast má við fjölda erlendra leikmanna. Segja má að Ísland sé á heimsvísu orðið eins konar Mekka í frisbígolfi. Er það m.a. vegna þess að hér á höfuðborgarsvæðinu er unnt að leika á þrettán frisbígolfvöllum þar sem ekki er lengra en fimm mínútna keyrsla á milli frisbígolfvalla“,  segir Árni Sigurjónsson, eigandi Frisbígolfbúðarinnar, en hann er bæði kennari og keppnismaður í  frisbígolfi.

Þorvaldur.

Setja upp velli um allt land.  

Á  höfuðborgarsvæðinu eru 13 frisbígolfvellir en um land allt má finna um 60 frisbígolfvelli. „Þetta eru yfirleitt 9 körfu vellir, en sumir eru 18 körfu. Einn 18 körfu frisbígolfvöll er að finna á höfuðborgarsvæðinu, hann er í Gufunesinu.“ Þá má geta þess að Frisbígolfbúðin er að vinna að hönnun og uppsetningu á nýjum 18 körfu frisbígolfvelli við Háskólann á Akureyri sem verður hinn glæsilegasti. Starfsmenn Frisbígolfbúðarinnar hafa verið iðnir við uppsetningu frisbígolfvalla víða um land. „Það styttist í að hægt verði að spila frisbígolf nánast hvar sem er á landinu.“

Ódýr og fjölskylduvæn dægrastytting

Frisbígolf er afar fjölskylduvænt sport. Það er stórskemmtilegt fyrir fjölskyldur að stunda og nota tíma saman við þá iðju. Kostnaður er tiltölulega lítill. „Sem dæmi kostar „startpakki“, sem saman stendur af þremur diskum, ekki nema 5.000 krónur hjá okkur og þá er maður eiginlega orðinn gjaldgengur á þá fjölmörgu frisbígolfvelli sem er að finna um landið.“ Þarna er því um að ræða ódýra íþrótt sem hægt er að stunda nánast allan ársins hring.

Mikael Máni.

 

Andri Fannar.

Hefur þú prófað frisbígolf? 

Diskarnir sem íþróttin er stunduð með eru töluvert frábrugðnir venjulegum leikfanga-kastdiskum. Þeir  eru aðeins þyngri og þá er tæknin og aðferðafræðin önnur. „Flestir kasta venjulegum  leikfanga-kastdiskum frá bringu og út. En frisbígolfdiski er kastað þannig að líkja má því við að maður sé að toga sláttuvél í gang, sem staðsett er á borði fyrir aftan mann. Þannig býrðu til meiri snúning og hraða á diskinn þegar þú sleppir honum. En þetta er allt kennt ítarlega á námskeiðum sem við bjóðum upp á og þar fær spilarinn góða grunnfræðslu.“

Fjöldi námskeiða er í boði  hjá Frisbígolfbúðinni fyrir einstaklinga og hópa, eins verða boðin námskeið fyrir börn og unglinga á öllum aldri​.​ T.d. verða haldin námskeið í sumar í Guðmundarlundi í Kópavogi, sem eru ætluð fyrir börn frá 8 ára til 12 ára aldurs. Þar geta foreldrar nýtt frístundastyrk frá Kópavogi​. Slík námskeið hafa alltaf verið mjög vinsæl hjá krökkum. Eins býður Frisbígolfbúðin upp á námskeið fyrir 40 ára og eldri. Slíkt námskeið verður fljótlega haldið og er frekari upplýsingar að finna hjá starfsfólki Frisbígolfbúðarinnar.​

 

Fyrirtæki, hópefli

Frisbígolfbúðin sér um hópefli og skemmtanir fyrir fyrirtæki. Sífellt fjölgar þeim sem hafa áhuga á því að kynnast sportinu og hefur þetta þar af leiðandi verið mjög vinsæll kostur fyrir hópa.

Hægt er að forvitnast um öll námskeið með því að hafa samband við Frisbígolfbúðina í síma: 899-8899 eða í netpósti: ​frisbigolf@frisbigolf.is

Frisbígolfbúðin er staðsett í Bolholti 4.

Fylgstu með okkur á Facebook: ​Frisbígolf búðin 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum