fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Kynning

Bílaklæðningar Ragnars Valssonar: Fjölskyldufyrirtæki í 50 ár!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Sunnudaginn 17. mars 2019 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bílaklæðningar Ragnars Valssonar er sannkallað fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið starfandi í hálfa öld, en fyrirtækið stofnaði Ragnar Valsson árið 1968. „Ég rek fyrirtækið með honum föður mínum í dag og hef gert í um 25 ár. Hann er orðinn 75 ára gamall og er hvergi nærri hættur,“ segir Sveinn Ragnarsson.

Bílaklæðningar sjá um alls kyns breytingar og viðbætur sem tengjast yfirbyggingu, klæðningu og breytingum á bílum. Hjá fyrirtækinu starfa um 10 manns, allir með mikla reynslu í faginu. „Við erum mikið til að þjónusta fyrirtæki með fyrirtækjabifreiðar og vinnubíla, en einnig einstaklinga. Við erum bæði með staðlaðar lausnir og vinnum að séróskum viðskiptavina okkar, allt eftir því hvað hentar hverju sinni. Flestir okkar viðskiptavina eru fastakúnnar sem koma til okkar þegar þarf að innrétta nýja bíla eða breyta eldri bílum,“ segir Sveinn.

Ferðaþjónustubíll.

Sérhæfðar breytingar

Ásamt því að smíða hestakerrur, húsbíla og ýmislegt fleira þá sjá Bílaklæðningar meðal annars um viðgerðir og ísetningu á sætum fyrir ýmiss konar sérhæfðar vinnubifreiðar. Þar á meðal má nefna hjólastólabifreiðar.

Hjólastólabíll. Gólf með brautum til að festa hjólastóla og sæti sem einfalt er að færa.

Þá hafa þeir verið að klæða og einangra bíla sem ætlaðir eru til kæliflutninga á matvörum. Að auki hafa þeir gert breytingar á bifreiðum fyrir iðnaðarmenn og sett upp innréttingar þannig að bílarnir verða þá eins og verkstæði á hjólum.

Verkstæði á hjólum.

„Nú nýverið vorum við að breyta nýjustu Volkswagen Transporter-lögreglubílunum. Þá smíðuðum við allar innréttingarnar og sáum um ísetningu og frágang á þeim.“

Gert til að endast

Bílaklæðningar bjóða einnig upp á heitklæðningu á pöllum á öllum gerðum pallbíla og hestakerrum ásamt sendibílum og farþegabílum. „Heitklæðningin er gúmmíkennd húð sem sprautað er heitri á fleti og hefur gríðarlega viðloðun og styrkleika. Þetta efni er gríðarsterkt og endingargott og lengir líftíma á þeim flötum sem húðin er sett á svo um munar.“

Einangraður kælibíll með heithúðun á gólfi og einangrun á hliðum og toppi.

Nánari upplýsingar má nálgast á bkl.is

Kársnesbraut 100, 200 Kópavogi.

Sími: 554-0040 og 554-6144

Netpóstur: bkl@bkl.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum