Grill og kokteilbarinn Matarkjallarinn í Grófinni hefur heldur betur fest sig í sessi sem einn af uppáhaldsveitingastöðum Íslendinga síðustu tvö ár. Þar mætast frönsk brasserie-stemning og íslenskt hráefni og útkoman er hreint út sagt stórkostleg.
Hungrar þig í hanastél?
Það er fátt sem kemur fólki í betri fíling en góður kokteill. Á Matarkjallaranum er hægt að komast í fyrsta flokks hanastél. „Við erum með hæfileikaríka kokteilbarþjóna hér á Matarkjallaranum sem töfra fram æðislega fordrykki og gómsæta eftirréttakokteila sem gaman er að smakka á,“ segir Valtýr Bergmann á Matarkjallaranum.
Steikarplanki á bóndadaginn
Í tilefni bóndadagsins, núna á föstudaginn 25. janúar, býður Matarkjallarinn upp á sérstakt Bóndadagstilboð. „Þá fylgir drykkur mánaðarins með öllum samsettum matseðlum um helgina. Ég mæli sérstaklega með Haf og haga matseðlinum okkar þar sem aðalrétturinn er steikarplanki með lambafillet, nautakjöti og svínasíðu með humarhala. Þessi matseðill er svona ekta fyrir bóndann og hefur verið einn vinsælasti matseðillinn okkar frá opnun,“ segir Valtýr.
„Vetrartilboð er á Leyndarmálsmatseðlinum okkar fram til fyrsta febrúar, sunnudaga til fimmtudaga. Um er að ræða sex rétta matseðil með sérvöldum réttum á einungis 6.990 krónur. Fullt verð er 10.900 krónur og því erum við að gefa virkilega góðan afslátt,“ segir Valtýr.
Dásemdar vínseðlar
Matarkjallarinn býr einnig yfir yfirgripsmiklum vínseðli með fyrsta flokks vínum. „Þjónarnir okkar hjálpa gestum við val á góðu víni sem passar þeim réttum sem valdir eru. Einnig erum við með tilbúna vínseðla sem hægt er að bæta við samsettu matseðlana þar sem hvert vín er valið af kostgæfni til þess að fylgja réttunum,“ segir Valtýr.
Matarkjallarinn er í kjallaranum í Aðalstræti 2, 101 Reykjavík.
Borðapantanir eru í síma 558-0000 eða á heimasíðu staðarins matarkjallarinn.is.
Matarkjallarinn er líka á Facebook og Instagram.
Opið er í hádeginu alla virka daga kl. 11.30–14.30 og kl. 17.00–23.00 öll kvöld vikunnar.