fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Kynning

Vermir sf: Traustir reynsluboltar í pípulögnum og fleiru

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Sunnudaginn 13. janúar 2019 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vermir sf. er gamalgróið pípulagningarfyrirtæki á Húsavík. „Við erum mest í að sjá um pípulagnir hér í bænum og á svæðinu hér í kring og fólk leitar til okkar því það veit að við erum traustir og skilum verkinu af okkur vel og vandlega unnu,“ segir Hallgrímur J. Sigurðsson, eigandi Vermis sf.

Vermir sf

Vermir sf

Fyrirtækið sinnir öllu sem viðkemur pípulögnum á heimilum, stofnunum og fyrirtækjum. „Við erum í efnissölu, vinnum við nýlagnir, viðgerðir og breytingar, allt eftir því sem hentar. Einnig sjáum við um sölu á hreinlætistækjum, blöndunartækjum og fleiru fyrir Tengi ehf.“

Vermir sf

Mikil reynsla og þekking

Starfsmenn Vermis sf. eru fimm talsins ásamt Hallgrími. „Hjá okkur starfa fulllærðir pípulagningameistarar, verkamenn og nemar, flestir með gríðarlega reynslu á bakinu.“ Fyrirtækið stofnaði Hallgrímur með föður sínum árið 1976 sem hafði þá starfað við pípulagnir í fjölda ára, og segir hann margt hafa breyst í pípulagningabransanum síðan þá.

Vermir sf

„Sjálfur hef ég verið í þessu í fjölda ára og séð margar breytingar. Menn eru að nota miklu léttari og betri efni í dag, eins og plast og þess háttar í staðinn fyrir þungan málm sem á það til að ryðga. Það er líka meira hreinlæti í nýju efnunum, engar olíur og þvíumlíkt.“

Vermir sf

Nánari upplýsingar má nálgast á www.vermir.is og Facebook-síðunni: Vermir sf.

Stórhóll 9, 640 Húsavík

Sími: 898-5513

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum