fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Kynning

Urta Islandica: Sælkeravörur úr íslenskri náttúru

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 28. september 2018 14:00

Saltpökkun

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við höldum okkur við það að bjóða upp á fallega matargjafavöru sem fólk getur gefið í tækifærisgjafir í staðinn fyrir hina klassísku vínflösku. Vörurnar eru í boði í fallegum umbúðum, bæði litlum fyrir tækifærisgjafir og stærri fyrir heimili eða fyrirtæki. Einnig getum við boðið upp á sérmerkingar sem er sérstaklega gaman fyrir t.d. gjafir í brúðkaupum eða fyrir fyrirtæki sem vilja gefa upplýsingarnar um sig í öðru formi en hinu klassíska nafnspjaldi,“ segir Guðbjörg Lára Sigurðardóttir hjá fyrirtækinu Urta Islandica.

Einkunnarorð fyrirtækisins er „Sælkeravörur úr íslenskri náttúru“ og eru vörurnar vinsælar bæði hjá erlendum ferðamönnum og Íslendingum.

Básvegur

„Við sérhæfum okkur í íslenskum jurtum og berjum. Síðan framleiðum við íslensk jurtakryddsölt þar sem við blöndum berjunum og jurtunum við saltið. Þetta er allt handtínt og pakkað. Við erum sem sagt með jurtakryddsölt, síróp, sultur, kex og jurtate – og nær vörulínan okkar yfir 200 vörutegundir. Það nýjasta er framleiðsla á sírópi úr íslenskum jarðsjó en fyrstu afurðirnar úr þeirri línu eru væntanlegar,“ segir Lára.

Urta Islandica er með starfsstöðvar á þremur stöðum og selur vörur sínar í verslanir úti um allt land. Auk þess er vefverslun á síðunni urta.is þar sem jafnframt má fræðast um fyrirtækið og vörurnar. Urta Islandica er ekta fjölskyldufyrirtæki en stofnendur eru hjónin Þóra Þórisdóttir og Sigurður Magnússon. Á heimili þeirra hjóna að Austurgötu 47 í Hafnarfirði var fyrirtækið stofnað og þar er ennþá tilraunaeldhús, skrifstofa og verslun. Lára dóttir þeirra sér um markaðsmál og hönnun en bræður hennar tveir starfa við framleiðsluna. Þá eru einnig fimm aðrir starfsmenn í Urta-fjölskyldunni.

„Við erum með flotta framleiðsluaðstöðu að Básvegi 10 í Reykjanesbæ og þar getur fólk fengið að horfa inn í framleiðsluferlið jafnframt því að skoða vöruúrvalið í verslun okkar á staðnum. Verslunin og framleiðslan á Básvegi gengur undir nafninu Sjóbúð, en þar eru framleidd öll okkar jurtakryddsölt, jurtasíróp, sultur og þar erum við einnig með okkar eigin borholu með íslenskum matvælavottuðum jarðsjó.“

Önnur framleiðslustöð er síðan að Hafnarbraut 11 á Höfn í Hornafirði, í gömlu sundlaug Hornfirðinga, þar fer fram öll jurtavinnsla og framleiðsla á jurtatei.

Fyrirtæki í sífelldri þróun

„Við höfum þróast mikið í kringum ferðamannastrauminn en undanfarið höfum við verið að vinna okkur í átt að útflutningi og það er næsta skref,“ segir Lára. Hún segir frá því að sírópið frá Urta Islandica sé mjög vinsælt í matvælaframleiðslu og á veitingastaði, t.d. í kokteila, skyr og íssósur.

„Jurtakryddsaltið er vinsælasta afurð Urta Islandica í dag, þá má nefna hið sívinsæla Black Lava-salt, sem fer vel og lítur glæsilega út með öllum mat. Vörulínurnar okkar eru fjölbreyttar og það ættu allir geta fundið sitt uppáhald. Fyrirtækið er í stanslausri þróun og búast má við spennandi nýjungum frá því í framtíðinni.

Sjá nánar á urta.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum