Matti smiður
Matthías Pétursson húsgagnasmiður er með yfir þrjátíu ára reynslu af smíði og vinnur með Matthíasi syni sínum, sem er að ljúka námi í húsasmíði, og mun taka við rekstri föður síns þegar fram líða stundir. Þeir feðgar taka að sér flest það sem lýtur að smíði, nýsmíði og lagfæringum. Matthías segist lengi vel hafa unnið við sérsmíði á innréttingum:
„Undanfarin ár hefur sérsvið mitt hins vegar verið garðar og hellulögn. Ég tek að mér fjölbreytt verkefni eins og sumarhús, einkalóðir, lóðir undir nýbyggingar og eins eldra húsnæði. Að auki sé ég um nýja garða og endurgerð eldri garða.“
„Yfir sumartímann huga margir að sólplöllum enda eru þeir ekki bara til þess að njóta sólarinnar heldur nýtast einnig sem frábær framlenging á sjálfri stofunni,“ segir Matti. „Það er einnig annatími í hellulögn og girðingum. Skjólveggir, bekkir, kofar og geymslur spretta upp eins og gorkúlur í görðum landsmanna með hækkandi sól,“ bætir hann við og nefnir að fátt sé skemmtilegra en vorverkin.
„Fjölmargir hafa fengið sér heitan pott í garðinn á undanförnum árum. Það skiptir meginmáli að pallurinn við pottinn sé vel úthugsaður og huga þarf vel að staðsetningu og umhverfi pottsins. Best er að pallurinn sé á tveimur hæðum og smíða tröppur á snyrtilegan hátt upp á efri pallinn til þess að auka rýmið umhverfis pottinn. Tröppurnar geta svo einnig nýst fyrir blómapotta og luktir sem gera umhverfið mun hlýlegra við pottinn. Á efri pallinum myndast þá líka rými fyrir borð og stóla. Þegar sólpallar eru ekki stórir eins og í þessu tilfelli er mikið atriði að fella pottinn inn í umhverfið til þess að skapa rými. Rýmið umhverfis pottinn er t.d. hægt að nota fyrir glös og diska þegar hann er í notkun.“
„Við Mattarnir smíðum líka utan um sorptunnur á faglegan hátt og búum til falleg blómabeð til skrauts og ofan á hleðslur. Við notum ýmsar viðartegundir við smíðina eins og t.d. lerki, eik, furu og jafnvel tekk. Við tökum glaðir við verkum á landsbyggðinni og höfum sinnt verkefnum um land allt, eins og t.d. á Flúðum, Þingvöllum, Snæfellsnesi og í Skorradal. Við Mattarnir smíðum í raun allt sem hugsast getur – innandyra sem utan. Við getum séð um parketlögn, parketslípun, milliveggjasmíði, uppsetningu innréttinga, uppsetningu hurða, þakviðgerðir og fleira,“ segir Matti.
Matti smiður, netfang: mattismidur@mattismidur.is, sími: 893-3300 og 691-0621 www.mattismidur.is.