fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Kynning

Kollagen er ekkert venjulegt prótein: Eflir heilsu og varðveitir æskuljóma húðarinnar

Kynning
Kynningardeild DV
Laugardaginn 22. september 2018 17:00

Greta Ósk Óskarsdóttirm, Mamma veit best

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kollagen er mikilvægt prótein sem gegnir lykilhlutverki í varðveislu á æskuljóma húðarinnar. Mamma veit best flytur inn NeoCell kollagen í duftformi, en NeoCell er leiðandi í framleiðslu og þróun á kollagenbætiefnum í heiminum.

„Kollagen er prótein, en það er ekkert venjulegt prótein. Kollagen er byggingareining líkamans og er sérlega mikilvægt þegar kemur að viðhaldi húðarinnar. Með hækkandi aldri minnka kollagenbirgðir líkamans og hann á æ erfiðara með að framleiða það sjálfur. Afleiðingarnar eru þær að byggingar- og burðarvefur líkamans lætur á sjá. Eftir því sem kollagenframleiðslan minnkar verða kollagenþræðirnir stökkari og byrja að brotna niður, en það veldur þessum klassísku ummerkjum öldrunar eins og hrukkumyndun, meiðslum á sinum og liðverkjum. Þess vegna styður inntaka á kollageni við heilsu og æskuljóma líkamans,“ segir Greta Ósk Óskarsdóttir, bætiefnaráðgjafi hjá Mamma veit best sem flytur inn NeoCell kollagen í duftformi.

„Kollagenduftið frá NeoCell hefur verið þróað þannig að það vinnur með hinum náttúrulegu endurnýjunarferlum í líkamanum. Það er í senn bætiefni og snyrtivara því það hjálpar líkamanum að byggja upp og endurnýja líkamsvefi um leið og það hefur fegrandi áhrif á húðina. Kollagenduftið færir húðinni aukna mýkt og raka og styrkir jafnframt neglur og hár,“ segir Greta.

NeoCell býður upp á hæsta ráðlagða dagskammt á markaðinum til að snúa hratt og örugglega við tapi á kollageni í líkamanum. „Með því að halda uppi heilbrigðu framboði af kollagenpeptíðum í líkamsvessum er líkaminn hvattur til uppbyggingar og nýmyndunar á kollagenvefjum. Venjulega eru kollagensameindir mjög stórar og vega að meðaltali 400.000 daltón en NeoCell kollagen hefur verið forunnið með ensímum svo það vegur aðeins 3.000 daltón. Upptaka á NeoCell kollageni er um 90% og því vinnst það einstaklega vel í líkamanum,“ segir Greta.

 

 NeoCell leiðandi í framleiðslu á kollageni

NeoCell hefur verið leiðandi fyrirtæki í framleiðslu á kollageni í tvo áratugi og bættist nýverið við úrvalið hjá Mamma veit best. „NeoCell er söluhæsta kollagen í Bandaríkjunum. Fyrirtækið setur markið hátt og gerir ýtrustu gæðakröfur til vara sinna og hefur það að markmiði að vörurnar séu með öllu öruggar og algjörlega hreinar. Hver einasta vörulota sem er framleidd er prófuð og vottuð á rannsóknarstofum af þriðja aðila,“ segir Greta.

Sjá nánar á mammaveitbest.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum