fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Kynning

Bílaverkstæðið Smur og dekk: Dekkjaþjónusta, almennar viðgerðir og dráttarbílaþjónusta

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 15. september 2018 15:00

Smur og dekk þjónar háum og lágum; fyrir tveimur árum þurfti forsetabíllinn aðstoð.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Hér eru margar brekkur og fjöll og því eru um 85% ökumanna hér á negldum dekkjum yfir veturinn. Það fer eftir tíðafari hvenær vertíðin hefst en ef það byrjar að snjóa fyrir lok september þá er ljóst að fólk bíður ekki með að fara á nagladekkin,“ segir Páll Heiðar Hauksson, eigandi Bílaverkstæðisins Smur og dekk, Aðalstræti 3, Patreksfirði.

Páll er meistaralærður bifvélavirki og hefur rekið verkstæðið í 17 ár. Auk hans eru þar tveir starfsmenn. „Núna fara vetrarverðlistarnir úr Reykjavík að detta inn og fólk fer að hafa samband og panta sér dekk. Við seljum aðallega dekk frá Sólningu og Bílabúð Benna og bjóðum að sjálfsögðu líka upp á dekk frá fleiri aðilum. Það má geta þess að öll dekk kosta það sama hjá mér og í Reykjavík, þ.e.a.s. það er enginn auka flutningskostnaður,“ segir Páll.

Verkstæði hans þjónustar sunnanverða Vestfirði og segir Páll að það sé mikið að gera allt árið. „Mest er að gera á sumrin þegar túristarnir bætast við. Það róast örlítið í september og þá höfum við tíma til að taka til. Svo byrjar dekkjavertíðin.“

Smur og dekk sinnir öllum almennum bílaviðgerðum og þjónustar allt frá sláttuvélum og upp í vörubíla, að minnsta kosti hvað snertir minniháttar viðhald. Góður lager varahluta er til staðar, til dæmis olíusíur og bremsuklossar, en síðan er pantað eftir þörfum og er biðtími stuttur.

„Það er ekki löng bið hér eftir viðgerð en ég reyni að forgangsraða eftir þörfum viðskiptavina,“ segir Páll. Verkstæðið er vel búið tækjum og er til dæmis með aflestrartölvur og bilanagreiningatölvur.

Fyrir utan viðgerðir og dekkjaþjónustu hjálpar Smur og dekk vegfarendum sem festast í snjónum í vetur en fyrirtækið er með dráttarbílaþjónustu og hefur auk þess til reiðu 37 tommu jeppa með spili. „Tryggingafélög og FÍB leita til okkar þegar fólk festir bílana sína hér fyrir vestan,“ segir Páll.

Nánari upplýsingar eru í síma 4561144 eða í gegnum netfangið palli@patro.is.

Í desember er starfsemin að flytjast í nýtt húsnæði sem er verið að byggja. Meira um það síðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum