fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Kynning

Bílahöllin-Bílaryðvörn: Hágæða Dinitrol-ryðvarnarefni og fagmennska við ryðvörn

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 15. september 2018 17:00

Fituvaxefni eru sett í öll holrúm og bita

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ein algengasta athugasemdin við söluskoðun á notuðum bílum er sú að undirvagninn sé farinn að ryðga. Þetta dregur mjög úr endursöluverði bílanna. Fagmannleg og regluleg ryðvörn er mikilvæg fyrir endingu bílsins en haustin eru sá árstími þegar flestir láta ryðverja bílinn sinn.

„Við erum með mikla seltu og sérstakar aðstæður á götum hér yfir vetrartímann, sem verja þarf bílinn fyrir,“ segir Baldur Jónsson hjá Bílahöllinni-Bílaryðvörn þar sem fara saman mikil þekking á ryðvörn og bestu fáanlegu ryðvarnarefnin.

„Við notum hágæða ryðvarnarefni sem heitir Dinitrol. Til að ryðverja undirvagn þarf þrjár til fjórar gerðir af efnum eftir því hvar er borið á. Inn í öll lokuð hólf fer til dæmis fituvaxefni sem er alltaf lifandi. Það þýðir hins vegar lítið að setja slíkt efni undir botninn þar sem mesta álagið er því það skolast of fljótt í burtu; þar þarf að vinna með sterkara efni sem helst á, þekur botninn í heild sinni og veitir líka hljóðeinangrun,“ segir Baldur.

Fituvaxefni eru sett í öll holrúm og bita

Að meðaltali þarf að ryðverja bíl á þriggja ára fresti og flestir koma með bílinn á haustin til að gera hann kláran fyrir veturinn. Þetta er því ekki mikil fjárfesting yfir líftíma bílsins en það kostar rúmar 40.000 krónur að ryðverja meðalfjölskyldubíl. „Best er að koma með bílinn áður en hann byrjar að ryðga en það er líka hægt að vinna með bíla sem eru byrjaðir að ryðga. Bíllinn er háþrýstiþveginn og hreinsaður þannig að engin selta sé undir honum; síðan er hann hitablásinn. Sérstökum efnum sem stoppa ryð er sprautað á svæðin sem byrjuð eru að ryðga og svo eru sterkari efni sett yfir þau til að verja þau,“ segir Baldur.

Allir bílar eru gufuþvegnir og þurrkaðir í hitablæstri

Hreinn undirvagn og réttu efnin

Fagmennsku þarf til að veita réttu ryðvörnina og Baldur leggur áherslu á að þetta snúist ekki um að gluða bara einhverri ryðvörn á bílinn. Þess er gætt að undirvagninn sé alveg hreinn og síðan þarf að beita mismunandi gerðum af ryðvarnarefni á mismunandi staði bílsins. Undir hágæðalínunni Dinitrol er að finna allar gerðir af efnum sem þarf að nota og hafa starfsmenn Bílaryðvarnar mikla reynslu og þekkingu á þeim.

Bílaryðvörn er staðsett á Bíldshöfða 5

Jón Ragnarsson stofnaði Bílaryðvörn og starfar í fyrirtækinu ásamt sonum sínum tveimur, Baldri og Rúnari. Fyrirtækið er rekið á sama stað og bílasalan Bílahöllin, að Bíldshöfða 5. Símanúmer er 587-1390. Einnig er hægt að koma með bílinn að Bíldshöfða 5 og láta ástandsmeta hann. Starfsmenn meta þá hvort bíllinn þarf á ryðvörn að halda fyrir veturinn.

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum