fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Lítil í upphafi: Hin frábæru Bergstein-stígvél og haustmarkaður um helgina

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 31. ágúst 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Búðin var í mörg ár á Skólavörðustíg en er í dag eingöngu á netinu,“ segir Eygló Árnadóttir eigandi barnavöruverslunarinnar Lítil í upphafi, sem sérhæfir sig í hágæða vörum fyrir litla fólkið.

Vefverslun er afar þægilegur kostur fyrir nútímafólk sem getur þá valið vörur í rólegheitum heima hjá sér og fengið þær sendar heim, á vinnustaðinn eða sótt sjálft á þeim tíma sólarhringsins sem best hentar. Auk þess er verðið yfirleitt lægra þar sem minni yfirbygging og lægri rekstrarkostnaður fylgir vefnum en hefðbundnum verslunum. „Okkar markmið er að bjóða vandaða og fallega vöru á eins lágu verði og við getum, og bjóðum upp á evrópsk merki á borð við Sebra, Done by deer og Djeco,“ segir Eygló.

Frí heimsending um allt land

„Okkur þykir mikilvægt að bjóða líka fría póstsendingu út á land og í raun óréttlæti að fólk á landsbyggðinni þurfi að greiða hærra verð vegna búsetu sinnar,“ segir Eygló en engin sendingarkostnaður leggst ofan á vöruverðið ef pantað er fyrir 3.000 kr. eða meira. Sá munur er þó að á höfuðborgarsvæðinu eru vörurnar keyrðar heim að dyrum en úti á landi eru þær sendar á næstu póstafgreiðslu.

Bergstein-stígvélin – gæðastígvél í leikskólann og skólann

Nú gengur haustið í garð og mest selda varan um þessar mundir eru hin vönduðu Bergstein-stígvél sem eru kærkomin á fætur yngstu borgaranna. Þau eru handunnin úr náttúrulegu gúmmíi og eru því sérlega mjúk og lipur. Börnin verða síður sveitt á fótunum en í plaststígvélum. Þessi stílhreinu og endingargóðu stígvél eru fáanleg í öllum regnbogans litum svo allir krakkar ættu að finna sinn uppáhalds. Stígvélin fást í stærðum 20-35, og kosta frá 5.900 kr. sem er frábært verð fyrir þessa hágæða vöru.

Haustmarkaður netverslana

Ávallt er hægt að hafa samband við Lítil í upphafi í síma 868-2572, í netfangið litiliupphafi@litiliupphafi.is eða í gegnum Facebook-síðu verslunarinnar og fá að kíkja á lagerinn í Hlíðunum, skoða vörur og til dæmis máta Bergstein-stígvél. Eins er sjálfsagt að banka upp á með fleiri en eina stærð (eða liti) hjá óvissum kaupendum á höfuðborgarsvæðinu svo barnið geti mátað og valið.

Um helgina verður haustmarkaður rúmlega 60 fjölbreyttra netverslana haldinn í Víkingsheimilinu í Fossvogi og verður opið bæði laugardag og sunnudag frá kl. 11 til 16. Lítil í upphafi verður þar með bás og upplagt að koma við til að skoða og máta stígvélin, en þau verða á sértilboði á markaðnum ásamt fleiri vörum.

Sjá nánar netverslunina á litiliupphafi.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum