Sí- og endurmenntun er orðin sífellt mikilvægari í atvinnulífi nútímans þar sem starfsþróun og fagleg efling í starfi skipar stóran sess. Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS) hefur unnið markvisst að því að bjóða starfstengt nám með það að markmiði að efla atvinnulíf og samfélag á Suðurnesjum.
Á undanförnum árum hefur þróun og tækni í námi og kennslu tekið mikinn kipp hjá MSS. Stefnan í kennslufræði fullorðinna miðar að frekari þróun og auknum gæðum og að miðstöðin verði framúrskarandi á sviði fjarkennslu og fjarnáms.
Leikskóla- og stuðningsfulltrúabrú er tveggja ára námsleið fyrir þá sem starfa í leik- og grunnskólum og hafa ekki lokið formlegri menntun. Kennsla og verkefnavinna miða mjög að því að nýta starfsreynslu og tengjast veruleikanum á starfsvettvangi. Markmið með náminu er m.a. það að efla fagvitund og færni í starfi en námið getur einnig verið hvatning og fyrsta skref að frekara námi.
Sölu-, markaðs- og rekstrarnám er tveggja anna nám og hentar sérstaklega vel fyrir þá sem ganga með viðskiptahugmynd í maganum og langar að láta drauminn um eigin rekstur rætast. Námsleiðin er einnig frábær styrkur fyrir þá sem eru nú þegar í rekstri en vantar að skerpa á hugmyndum og aðferðum t.d. í markaðssetningu á samfélagsmiðlum. Hagnýtt nám sem skilar beinni afurð í formi viðskiptaáætlunar og plani um markaðsaðgerðir.
Skrifstofuskólinn, grunn- og framhaldsnám, er sérhæft nám fyrir fólk sem hefur áhuga á að ná sér í góðan undirbúning fyrir skrifstofustörf eða hugar að frekara námi á því sviði. Að námi loknu eiga námsmenn að hafa öðlast færni í skrifstofustörfum, hafa góða innsýn í rekstur fyrirtækja og góða bókhaldsþekkingu. Kennt er á bókhaldsforritið Navision.
Skráning er hafin á allar námsleiðir MSS. Nánari upplýsingar á www.mss.is.