Veitingastaðurinn Krydd var opnaður í lok apríl, í hjarta Hafnarfjarðar, nánar tiltekið í menningarmiðstöðinni Hafnarborg. Þar með rættist gamall draumur sex innfæddra Hafnfirðinga, þriggja para, sem eru þau Hilmar Þór Harðarson og Hulda Heiðrún Óladóttir, Signý Eiríksdóttir og Jón Tryggvason, og Geirþrúður Guttormsdóttir og Hafsteinn Hafsteinsson.
„Þetta er staðurinn sem okkur dreymdi alltaf um og þá á ég við að okkur langaði að það væri til svona veitingastaður í Hafnarfirði sem við gætum sótt,“ segir Hilmar Þór Harðarson sem gegnir stöðu framkvæmdastjóra og yfirkokks á Kryddi. En hvernig staður er þá Krydd? Karakterinn lýsir sér meðal annars í rýminu og innréttingunum sem taka mið af heimi hafnarinnar og sjósóknar.
„Í upphafi vorum við fyrst og fremst spennt fyrir plássinu, lofthæðin er mikil og það eru stórir, flottir gluggar. Við sáum þarna líka möguleika á að nýta bryggjutimbur sem er ráðandi þema á barnum og ganginum,“ segir Hilmar en hönnuðir staðarins eru þau Geirþrúður Guttormsdóttir, Jón Tryggvason og Signý Eiríksdóttir.
Frumleiki og bragðlaukagælur í matargerðinni
Krydd er með breiðan matseðil þar sem áhersla er á gæði, frábært bragð, gott hráefni og frumleika. Í hádeginu er boðið upp á nokkur salöt sem henta frábærlega vinnandi fólki í dagsins önn, þar á meðal humarsalat.
„Einn rétturinn er rifinn grís með BBQ, borinn fram í kleinuhring og hefur sá réttur heldur betur farið á flug,“ segir Hilmar.
Af öðrum vinsælum réttum má nefna Hafnarborgarann, nautarif og margt fleira. Oft er skipt um matseðil og um að gera að fylgjast með á kryddveitingahus.is.
Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni kryddveitingahus.is. Þar er líka hægt að ganga frá pöntun á borði. Hilmar mælir með þeirri leið en hún er þó ekkert skilyrði. „Við vísum engum frá og ef það er ekki laust borð er fínt að bíða hérna á huggulegu sófasvæðinu og fá sér fordrykk á meðan beðið er.“
Hafnfirðingar og fjölmargir aðrir eiga góðar stundir í vændum á Krydd veitingahúsi.