fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Englendingavík: Ferskur gæðamatur og sögufræg hús

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Mánudaginn 16. júlí 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á fallegum stað í gamla bænum í Borgarnesi liggur Englendingavík, stundum kölluð Kaupfélagsvíkin. Þar ríkir ró og friður, sem einungis er rofinn af fuglasöng og sjávarnið.

Í gömlu kaupfélagshúsunum þar sem stunduð var verslun til fjölda ára er nú rekinn veitingastaðurinn Englendingavík og heimagistingin Sjávarborg sem er í húsi við hlið veitingastaðarins. Elsta húsið í víkinni er frá árinu 1885 en húsin voru gerð upp um miðjan síðasta áratug af miklum myndarskap og er mikil prýði af þeim.

Nafnið er dregið af þeirri staðreynd að annað húsið sem reis í Borgarnesi byggðu tveir Englendingar frá Hull, en það hús stendur ekki lengur.

Einar Sigurjón Valdimarsson er staðarhaldari í Englendingavík og rekur veitingastaðinn og gistinguna. „Í dag erum við með heimagistingu en við erum að fara að bæta við stórum rúmgóðum herbergjum með sér baðherbergjum, og íbúð, í tvílyfta húsinu. Frábært útsýni verður úr herbergjunum og íbúðinni,“ segir Einar.

„Við leggjum upp með afslappað og notalegt andurúmsloft í anda gömlu húsanna í víkinni. Matseðillinn er fremur einfaldur. Við erum mikið með ferskan fisk en gúllassúpan okkar er líka mjög vinsæl, sem og fiskisúpan, að ógleymdu íslenska lambinu.“ Englendingavík er um margt fjölskylduvænn staður en þó er þar ekki sérstakur barnamatseðill heldur býðst foreldrum að kaupa fullorðinsrétti handa börnunum í smærri skömmtum og á lægra verði. Mælist þetta mjög vel fyrir.

Annað sem gerir Englendingavík að fjölskylduvænum stað er hinn sögufrægi Bjössaróló sem er nágranni Englendingavíkur. „Björn Guðmundsson hugsaði um endurnýtingu og smíðað þennan leikvöll einungis úr efni sem hafði verið hent og nýttist ekki lengur,“ segir Einar.

Englendingavík er niðri við sjó og þarna er fallegt útsýni út á sjóinn og nærliggjandi eyjar og sker sem iða af fuglalífi og gaman er að fylgjast með flóði og fjöru úr veitingasalnum. Ekki spillir fyrir að staðurinn er veðursæll. „Í norðan- og norðaustanátt, sem eru sólaráttirnar, er alltaf logn í Englendingavík, því vindurinn fer yfir okkur. Þá er frábært að sitja hérna á pallinum fyrir utan,“ segir Einar.

Veitingastaðinn Englendingavík sækja allt í senn innlendir sem erlendir ferðamenn og heimafólk. Að sögn Einars er fólk sem heldur til í sumarbústöðum í Borgarfirði tíðir gestir á staðnum.

Veitingastaðurinn er opinn fram á haust og er opið alla daga vikunna frá kl. 11:30 og þar til síðasti gestur fer á kvöldin en miðað er við að eldhúsið loki um 22:00.

Sjá nánar á Facebook-síðunni Englendingavík.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum