fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Kynning

Taflfélag Reykjavíkur: Holl æfing fyrir hugann

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 7. desember 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Taflfélag Reykjavíkur er stærsta skákfélag á Íslandi og hvorki meira né minna en 118 ára gamalt. „Það eru mörg skákfélög starfandi á landinu en Taflfélag Reykjavíkur er þeirra stærst og mjög virkt í að halda bæði skákæfingar og skákmót. Félagsmenn eru á fimmta hundrað og margir hverjir mjög virkir,“ segir Kjartan Maack hjá Taflfélagi Reykjavíkur.

 

Holl æfing fyrir hugann

Margir af eldri félögum halda sér í góðu formi með því að tefla reglulega en það er óneitanlega mjög örvandi fyrir hugann að tefla, hvort heldur er fyrir börn eða fullorðna. Vinsældir skákíþróttarinnar hafa aukist að undanförnu og er iðkendum sífellt að fjölga. „Flestir krakkarnir sem æfa hjá okkur æfa líka aðrar íþróttir. Það er mikilvægt fyrir þau að hreyfa sig reglulega samhliða skákinni og því hvetjum við okkar iðkendur til þess að stunda aðrar íþróttir. Það sem skákin hefur fram yfir margar aðrar íþróttir er hugarþjálfunin. Í skák læra iðkendur að temja sér þolinmæði, efla einbeitingu, hugsa fram í tímann, sjá fyrir hugsanlegar hindranir, setja sér markmið og gera áætlun, bregðast við hinu óvænta, taka erfiðar ákvarðanir undir pressu, læra af mistökum, fylgja reglum og bera virðingu fyrir umhverfi sínu, félögum og andstæðingum. Skákin kennir því eitt og annað sem heimfæra má á lífið sjálft,“ segir Kjartan.

Taflfélag Reykjavíkur

Æfingahópar fyrir alla

Taflfélag Reykjavíkur er með fjölda æfingahópa og námskeið fyrir skákáhugamenn á öllum aldri og á öllum skákstigum. Manngangskennslan er kynningarnámskeið fyrir börn sem eru að taka sín fyrstu skref á skákborðinu. Námskeiðið er einu sinni í viku og er öllum krökkum frjálst að mæta og prófa. Byrjendaflokkur er námskeið fyrir börn sem hafa lært mannganginn og geta teflt hjálparlaust. Stúlknahópurinn er sérstaklega ætlaður til þess að kynna skákíþróttina fyrir stelpum. Framhaldsflokkur er fyrir þau börn sem eru örlítið lengra komin og tefla reglulega á skákmótum. Afrekshópur er fyrir afreksfólk í skákíþróttinni. Á sumrin eru svo hin sívinsælu Sumarnámskeið.

Taflfélag Reykjavíkur

Fjöldi skákmóta

Taflfélag Reykjavíkur stendur fyrir rúmlega þrjátíu mismunandi skákviðburðum ár hvert fyrir fólk á ýmsum skákstigum. „Við höldum fjölmörg skákmót sem ætluð eru börnum eingöngu. Einnig eru mót fyrir lengra komna, afreksfólk og eldri félaga. Svo eru opin mót sem haldin eru fyrir alla þá sem vilja taka þátt. Framundan er eitt stærsta skákmót ársins, Skákþing Reykjavíkur. Mótið hefst sunnudaginn 6. janúar og er öllum velkomið að tefla með.

Taflfélag Reykjavíkur
Byrjendaæfing

Jólaskákæfing

Framundan hjá Taflfélagi Reykjavíkur er Jólaskákæfing TR fyrir öll börn og unglinga sem stunda skák hjá félaginu og foreldra þeirra eða aðra nákomna. „Þetta er hálfgerð uppskeruhátíð eftir haustönnina og breytum við örlítið út af vananum. Þetta er fjölskylduhátíð þar sem krakkarnir tefla í liði með einhverjum nákomnum. Á eftir er boðið upp á jólahressingu, veitt verðlaun fyrir ástundun og svo verður dregið í happdrætti. Öll börn og unglingar úr öllum skákhópum TR eru velkomnir á þessa sameiginlegu jólaskákæfingu þann 9. desember frá 13–15.30 og er um að gera að skrá sig á vefsíðunni taflfelag.is.

 

Taflfélag Reykjavíkur er staðsett að Faxafeni 12, 108 Reykjavík

Netfang: taflfelag@taflfelag.is

Vefur: taflfelag.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum