fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

Hús og Mál: Gæðaþjónusta í viðhaldi, viðgerðum og frágangi

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 28. desember 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hús og Mál er alhliða þjónustufyrirtæki við byggingar og viðhald fasteigna. Fyrirtækið sinnir jöfnum höndum húsaviðgerðum, nýbyggingum, gluggaviðgerðum og parketlagningu. Fyrirtækið er í eigu Litháans Darius Kochanas sem flutti hingað til lands árið 2000 með tvær hendur tómar og hóf störf við parketlagningu. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og Darius hefur byggt upp blómlega starfsemi þar sem áhersla er á vandaða og persónulega þjónustu.

„Fagmenn okkar geta endurnýjað húsið, heimilið, skrifstofuna, vinnustaðinn eða sumarbústaðinn og nota við vinnu sína aðeins bestu fáanleg efni. Hús og Mál framkvæmir alla byggingarvinnu í samvinnu við reynslumikla iðnaðarmenn. Við sinnum húsaviðgerðum, þakviðgerðum, parketslípun og parketlögn, gluggaviðgerðum, innréttingum, undirbúningi verkefna, málningarvinnu og lyftaraleigu,“ segir Darius.

Hús og Mál leggur mikið upp úr faglegri ráðgjöf og leitast ávallt við að benda viðskiptavinum á bestu lausnirnar, þeim að kostnaðarlausu.

Tíminn líður hratt og áður en við vitum af verður vor í lofti. Þá fara margir að sinna viðhaldi húseigna sinna. Viðhaldsþjónusta hjá Hús og Mál er í höndum reynslumikilla byggingasérfræðinga. Sérfræðingarnir hjá Hús og Mál hafa gert upp, endurnýjað og málað hinar ýmsu byggingar bæði erlendis og hérlendis og má þar nefna kvikmyndahús, háskóla, söfn og kirkjur – fyrir utan fjölbýlishús og einbýlishús.

Hús og Mál sinnir jafnt litlum sem stórum verkefnum. Til að fá nánari upplýsingar eða panta verk skaltu hringja í síma 778-7688. Nánari upplýsingar er einnig að finna á vefsíðunni husogmál.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum