fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

Vandaðar og persónulegar jólagjafir frá Purkhús

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Fimmtudaginn 20. desember 2018 10:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjá Purkhús fást fallegar og vandaðar vörur sem gaman er að gefa ástvinum í jólagjöf.

 

Vinsæl keramikdýr

Purkhús selur til dæmis skemmtilegar keramikvörur í dýrsmyndum frá Quail Ceramics. Þetta eru vandaðar og einstakar vörur handmálaðar í Bretlandi. „Ég byrjaði á að taka þessar vörur inn núna í haust og þær hafa verið mjög vinsælar og selst hratt upp. Til dæmis erum við með blómavasa, veggvasa, salt- og piparstauka, ýmiss konar ílát, könnur og smjördiska með loki.

PurkhúsPurkhús

Einnig er mikið úrval af salt- og pipar staukunum, þar á meðal ýmsar hundategundir og kettir. Vörurnar hafa verið mjög vinsælar í jólagjafir enda eru þær mjög skemmtilegar og öðruvísi. Það er tilvalið að gefa vini sem á labradorhund, salt- og piparstauka sem eru eins og labradorhundar,“ segir Sara Björk Purkhús. Quail Ceramics vörurnar má nálgast á vefsíðu Purkhús.

Purkhús

Purkhús

Stórskemmtileg kindaveggspjöld

Kostulegu kindaveggspjöldin frá ByOlafsdóttir eru færeysk hönnun. Harriet Olafsdóttir er bóndi í Færeyjum og hefur hún tekið myndir af kindum á bænum sínum og unnið þær. Hún útbjó einnig blómakórónurnar sem kindurnar skarta sjálfar. Veggspjöldin eru prentuð í Færeyjum á afar fallegan og vandaðan pappír og afhendast í fallegum pappahólkum og eru því tilvalin gjöf.

Purkhús

„Það eru líka mjög skemmtilegar sögur á bak við hverja kind. Bambi er til dæmis blind kind sem býr á litla bænum hjá Harriet og fjölskyldu. Áður en hún kom þangað fannst hún í skurði, öll úti í mold og varla með lífsmarki. Nú nýtur hún lífsins sem gæludýr fjölskyldunnar á Æðuvík í Færeyjum,“ segir Sara. Öll veggspjöldin má sjá á vefsíðunni.

Purkhús

Veglegir vinningar í boði

Vefverslunin Purkhús heldur úti stórsniðugu jóladagatali fyrir netklúbbfélaga sína. Það eina sem þarf að gera er að skrá sig í netklúbbinn og eru svo dregnir út veglegir vinningar daglega alveg fram að jólum. Skráðu þig í netklúbb Purkhús á vefsíðu Purkhús og eigðu kost á að vinna veglega vinninga.

Purkhús

Nánari upplýsingar má nálgast á purkhus.is

Purkhús er með vörurnar sem minnst er á í greininni og margt fleira til sýnis og kaups í glæsilegu sýningarrými að Ármúla 19, 2. hæð. Opnunartíma má finna á vefsíðunni purkhus.is.

Facebook: www.facebook.com/purkhus/
Instagram: www.instagram.com/purkhus/

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum