Segway farartækin þekkja margir enda stórskemmtileg í notkun og í sjón. Nú hefur fyrirtækið hannað nýtt og stórsniðugt farartæki; Segway rafskauta. Skautarnir henta vel fyrir stuttar vegalengdir þegar þurrt er úti og gangstéttir eru malbikaðar og við kjöraðstæður er hægt að ná allt að 12 km hraða á klst.
Léttir og einfaldir í notkun
Rafskautarnir eru ekki ósvipaðir línuskautum nema einfaldari, léttari og hentugri í notkun. Segway rafskautarnir eru með teygjum svo auðvelt er að taka þá af og halda á þeim þegar hentar ekki að vera á þeim. Engin beisli eru á skónum heldur er einfaldlega stígið ofan á þá og lagt af stað. Því er t.d. auðvelt að kippa þeim með sér inn í og út úr strætó.
Öruggir og slitsterkir
Segway rafskautarnir þola allt að 100 kíló. Framan og aftan á skutunum eru gúmmístuðarar sem dempa högg og ljós tryggja sýnileika í rökkri. Ljósin eru stillanleg með púlsljósi og litabreytingum. Dekkin eru gegnheil og algerlega viðhaldslaus, auk þess sem skautarnir eru vatnsþolnir og slitsterkir.
Fást í Heimilistækjum