fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Kynning

Söngsteypan hjálpar fólki að fylgja hjartanu

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Sunnudaginn 9. desember 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Söngsteypan var stofnuð árið 2006 af Heru Björk og síðan þá hefur skólinn stækkað hægt og bítandi. Í dag eiga skólann með Heru Björk þær Aldís Fjóla og Rósa Björg, söng- og tónlistarkonur. „Það er góður slatti af söngvurum sem hefur farið í gegnum námskeiðin hjá okkur og er alltaf jafn gaman að sjá árangurinn. Það er ákveðinn fjöldi sem finnur sig vel í söngnum og uppgötvar að sig langi að halda áfram. Sumir taka fleiri námskeið, einhverjir fara í kórastarf og aðrir á fullt í það að syngja, semja og gefa út eigið efni. Það er ótrúlega gefandi að horfa upp á fólk fylgja hjartanu út í tónlistina,“ segir Hera Björk.

Söngsteypan

CVT afhjúpar leyndardóma raddarinnar

Í Söngsteypunni er notast við tækni sem nefnist Complete Vocal Technique (CVT). CVT er ein útbreiddasta söngtækni í Evrópu og hefur enn fremur hlotið mikið lof á alþjóðavísu. Markmiðið er að fjalla á skýran og skilvirkan hátt um röddina og draga úr öllum leyndardómum sem hafa oft á tíðum fylgt söng og söngkennslu. Fær söngvarinn skýrar leiðir til að vinna með sína rödd, ná sínum markmiðum og finna sinn hljóm. CVT nær yfir öll möguleg hljóð og tónlistarstefnur. Rannsóknarniðurstöður CVT hafa enn fremur sýnt fram á að hægt er að framkalla grófa effekta á heilbrigðan hátt með notkun tækninnar. „Við segjum stundum að CVT sé „idiot proof“ en það þýðir í raun að allir geta nýtt sér tæknina. Það skiptir ekki máli hvort söngvarinn sé byrjandi eða lengra kominn, hvort hann syngi djass eða dauðarokk. Þetta er aðferðafræði sem hentar öllum og veitir verkfæri svo fólk geti unnið áfram með sína rödd,“ segir Hera Björk.

Söngsteypan

Hópnámskeið tryggja góðan árangur

Söngsteypan heldur fjölda námskeiða sem má sækja, allt eftir áhuga hvers og eins. Námskeiðin eru hóptímar þar sem unnið er út frá einstaklingnum, getu hans og því sem þarf að bæta hverju sinni. „Við veljum oft fólk af mismunandi getustigum saman í hópa enda höfum við séð að það geta allir lært af öllum. Því ólíkari sem hópurinn er, því meira lærir fólk. Hinir lengra komnu læra því alls ekki síður af byrjendunum,“ segir Hera Björk. Kennarar Söngsteypunnar bjóða einnig upp á einkatíma fyrir þá sem vilja.

Söngsteypan

Fjöldi námskeiða í boði

Söngur og CVT er grunnnámskeið. CVT er kynnt fyrir nemendum og þeim leyft að máta sig við tæknina, læra að nota hana og að lokum finna sína rödd. Námskeiðið er kennt tvisvar í viku, aðra hverja viku í þrjá mánuði, alls 48 klst. Næsta námskeið byrjar 29. janúar 2019.

Söngsteypan

Í Söngur og sjálfstraust er farið í sjálfstraust söngvarans á sviði og skerpt á því ásamt því að vinna áfram í söngröddinni. Námskeiðið er kennt tvisvar í viku, aðra hverja viku í þrjá mánuði, alls 48 klst. Næsta námskeið byrjar 5. febrúar 2019.

Söngsteypan

Samsteypan er tveggja anna nám, kennt í sjö lotum. Nemendur vinna saman að því að þróast sem tónlistarmenn, semja lög og texta, útsetja, taka upp í stúdíói, vinna í kynningarmálum, koma fram á tónleikum og fleira og fleira. „Þetta er allsherjar kynning á því hvernig tónlistarbransinn virkar. Farið er í hluti eins og frammistöðukvíða og fullkomnunaráráttu, hvernig maður kemur sér á framfæri á samfélagsmiðlum, regluverk varðandi útgáfu og fleira. Námskeiðið er tilvalið fyrir þá sem langar að öðlast reynslu og fá nasaþefinn af því að semja og gefa út tónlist. Við höfum fengið ýmsa þekkta tónlistarmenn sem gestakennara. Meðal annars komu reynsluboltarnir Ragga Gísla, Jónas Sig. og Emilíana Torrini og sögðu reynslusögur úr bransanum. Þau voru öll uppveðruð eftir að hafa komið og sögðust hafa lært helling af nemendunum alveg eins og nemendurnir lærðu af þeim,“ segir Hera Björk.

Söngsteypan

Tengslanetið

Hópstarfið hefur gefist afar vel hjá Söngsteypunni og er tengslanetið sem myndast milli nemenda ekki síður mikilvægt en hið eiginlega söngnám. „Það hafa orðið til traust vinabönd, dúettar, tríó og heilu hljómsveitirnar út frá námskeiðunum okkar og erum við ótrúlega stolt af þessu afburðarfólki,“ segir Hera Björk.

Söngsteypan

Söngsteypan er staðsett að Síðumúla 29, 108 Rvk.

Sími: 649-0104 og 699-4463

Netpóstur: info@songsteypan.is

Heimasíða: www.songsteypan.is

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum