fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Umhverfisvænar vörur og skapandi leikir fyrir börn

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Miðvikudaginn 28. nóvember 2018 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leikföng úr náttúrulegum efnivið eins og tré og silki

Verslunin Bambus.is sérhæfir sig í umhverfisvænum vörum fyrir fjölskylduna. „Við erum með mikið af leikföngum sem eru hönnuð til þess að vera opin fyrir hugmyndaflug og sköpunargleði barnsins,“ segir Dagný Ósk Ásgeirsdóttir.

Bambus.is

Leikjasilki

Bambus selur meðal annars stórskemmtileg leikjasilki, en þau geta börnin notað til að búa til hina ýmsu búninga, byggja virki, gera himnasæng, nota sem landslag eða vatn fyrir báta og dýr, í dans eða jóga og svo mætti lengi telja. Leikjasilkin eru létt og flögrandi ferningslaga silki í fallegum litum. Þau fást í nokkrum stærðum, bæði einlit og marglit en regnbogasilkið er alltaf vinsælast.

Bambus.is

Kubbapúsl

Kubbapúsl er púsl og kubbar í senn. Hægt er að púsla kubbunum í upphaflegt  form eða leyfa sköpunargleðinni að ráða för og skapa sín eigin form og myndir. Svo má líka nota kubbana sem kubba í turna og aðrar byggingar. Kubbarnir henta yngri börnum og æfa meðal annars fínhreyfingu og jafnvægi þegar þeim er staflað hverjum ofan á annan.

Bambus.is

Bambus.is

Segulkubbar

Svipað er uppi á teningnum með segulkubbana sem eru fyrir aðeins eldri börn. Þetta eru litlir trékubbar með áföstum segli og koma á málmplötu. Aftan á hverjum pakka eru hugmyndir að formum til að spreyta sig á en svo tekur sköpunarkrafturinn við þar sem búin eru til hin ýmsu form eða myndir. Möguleikarnir eru óendanlegir.

Bambus.is

Bambus.is

Sígild leikföng

„Við erum einnig með sígildar vörur eins og skálar til að raða saman og turna úr tré sem er raðað upp. Ein útgáfan er þannig að hver kubbur er mismunandi, efst er þríhyrningur, næst ferhyrningur svo fimmhyrningur og koll af kolli alveg upp í form með ellefu horn. Neðst er svo hringur. Þannig fléttast rúmfræði ómeðvitað inn í leik barnsins.

Bambus.is

Hugmyndir að jólagjöfum – búðu til óskalista

Óskalistinn hjá Bambus.is er tilvalinn fyrir jól og afmæli. Hjá Bambus.is er hægt að búa til óskalista þar sem foreldrar velja leikföng og hluti sem þeir óska eftir fyrir börnin sín og láta svo vini og ættingja vita af listanum. „Þetta er í raun svipað og brúðkaupslistarnir. Við höldum utan um listann og pössum t.d. upp á að sami hluturinn sé ekki keyptur tvisvar sinnum. Foreldrar geta svo haft samband ef þeir vilja bæta einhverju við listann eða breyta. Listann er bæði hægt að fylla út á netinu eða koma í búðina til okkar og við útbúum listann í sameiningu,“ segir Dagný.

 

Hjá Bambus.is er svo að sjálfsögðu hægt að fá gjafabréf með upphæð að eigin vali.

Bambus.isBambus.is

Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni bambus.is, á facebook.com/bambus.is og á Instragram undir bambus.is.
Einnig er hægt að kíkja í verslun okkar í Borgartúni 3, sem er opin á mánudögum og fimmtudögum frá kl. 10–14.
Sími: 847-1660
Netfang: bambus@bambus.is

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum