fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Íslensk klassík: Skötustóllinn 60 ára á næsta ári

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 27. nóvember 2018 16:00

Mynd: Silvia Gentili

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fáir gera sér grein fyrir því að íslenskur húsgagnaiðnaður var eitt sinn blómleg atvinnugrein. Húsgagnasmíði og bólstrun voru fjölmennar iðngreinar og fáum datt í hug að flytja inn húsgögn eða heilu innréttingarnar.

Fyrstu íslensku húsgagnaarkitektarnir, Helgi Hallgrímsson og Skarphéðinn Jóhannsson, luku námi í listiðnaðarskólanum í Kaupmannahöfn árið 1938 og voru þeir lengi vel einungis tveir starfandi á Íslandi, enda ómögulegt fyrir aðra Íslendinga að stunda nám í Evrópu á tímum heimsstyrjaldarinnar síðari, hvað þá í Danmörku sem þá var hersetin af Þjóðverjum. Fljótlega eftir stríð bættust fleiri í hópinn og voru þeir nánast allir menntaðir í listiðnaðarskólanum í Kaupmannahöfn (kunsthaandværkerskolen), þ.á.m. Sveinn Kjarval (1919–1981), en þar voru kröfurnar þær að nemendur þurftu fyrst að hafa lokið sveinsprófi í húsgagnasmíði.

Halldór Hjálmarsson (1927–2010), sem m.a. hannaði Skötustólinn, lauk námi í sama skóla árið 1956.

Þegar þessir hönnuðir sneru heim báru þeir með sér bestu mögulegu þekkingu og færni sem völ var á á þeim tíma og við tók blómaskeið nútímalegrar íslenskrar húsgagnahönnunar og framleiðslu undir sterkum áhrifum frá því besta í Danmörku og víðar.

Nýjar sérmerktar útgáfur framleiddar

Skötustóllinn á 60 ára afmæli á næsta ári og af því tilefni verða framleiddar sérmerktar útgáfur í takmörkuðu upplagi, sem einungis verða seldar á afmælisárinu, þótt hægt sé að panta stólana fyrirfram en borga við afhendingu á næsta ári, og því ágætis jólagjöf fyrir þá sem vilja fresta útgjöldum yfir jólin.

Saga Skötustólsins á sér rætur í námsárum Halldórs í Kaupmannahöfn. Skólinn og kennarar hans lögðu mikla áherslu á að vinna með það nýjasta og besta, út frá þeirri hugmyndafræði að alltaf væri hægt að gera gott betra og ekkert því til fyrirstöðu að vinna með þekkt húsgögn og þróa þau áfram. Þau voru sjálf afleiðing af þróun annarra húsgagna og svo koll af kolli. Poul Kjærholm, aðalkennari og góðvinur Halldórs, hvatti beinlínis til þess að sín húsgögn yrðu þróuð áfram og einfölduð, og má t.d. greinilega sjá líkindi með fyrsta stól Halldórs, stólnum HH-1 og stólnum PK-25, sem einnig var fyrsti stóll Pouls og útskriftarverkefni úr sama skóla. Sá stóll þótti ansi flókinn í smíði og kostar enda yfir 1,5 milljónir sé hann keyptur í dag. HH-1 byggir á svipaðri útfærslu, en er margfalt ódýrari í framleiðslu. Nokkur eintök voru nýlega framleidd til prufu.

Mynd: Silvia Gentili

Klassískur stóll gengur í endurnýjun lífdaga

Framleiðslan á Skötustólnum hófst að nýju árið 2007. Á bak við það stóð sonur Halldórs, arkitektinn Örn Þór Halldórsson, í samvinnu við Sólóhúsgögn, sem lengi vel voru einu söluaðilar stólsins. Örn hefur nú sjálfur tekið yfir framleiðslu og sölu, en þó í góðu samstarfi við Sólóhúsgögn, en að sögn Arnar hefur það fyrirtæki stutt dyggilega á við bak margra íslenskra hönnuða og er nánast eitt íslenskra fyrirtækja sem það gerir.

„Fyrir marga er þarna við ofurefli að etja í formi innflutnings og nánast einokunar eins fyrirtækis á íslenskum hönnunarmarkaði, sem einungis greiðir hönnuðum u.þ.b. 0,5–1,5% af söluverði, og minnir fyrirkomulagið einna helst á dönsku einokunarverslunina á sínum tíma. Íslenskir hönnuðir ættu því að taka höndum saman og reyna í sameiningu að koma sinni framleiðslu á framfæri, en það er auðveldara en margan grunar,“ segir Örn.

Mynd: Silvia Gentili

Skötustóllinn hefur notið vaxandi vinsælda á ný, enda tímalaus hönnun. Notaðir stólar hafa gengið vel í endursölu og síðustu viðhafnareintök sem voru framleidd í tilefni 50 ára afmælisstólsins ganga nú kaupum og sölum, nánast á sama verði og nýir stólar, ef þau yfirleitt fást til sölu. Stóllinn nýtur þess einnig að vera mun ódýrari en sambærilegir stólar og er það regla að hann skuli alltaf vera a.m.k. 25% ódýrari en sambærilegar, klassískar tegundir.

Viðhafnarstóllinn verður úr olíu- eða vaxborinni eða lakkaðri eik, allt gert í höndunum eins og í upphafi og verða nokkrir litir í boði.

Mynd: Silvia Gentili

Skötustóllinn er annars til í mörgum útgáfum og nýjustu útgáfurnar er m.a. hægt að skoða og kaupa í nýrri verslun Geysis-heima að Skólavörðustíg 12 og Álfagulli við Strandgötu í Hafnarfirði. Allar útgáfurnar af Skötu og Þórshamri, bæði nýjar og gamlar, eiga þó enn sitt sameiginlega útlit, sem er í senn stílhreint og listrænt. Segir Örn að þetta séu ljóðrænir stólar: „Þetta ljóðræna kemur ekki síst fram í því að festingarnar undir Skötustólnum minna á „egg“, en skatan verpir einmitt eggjum.“

Fyrir áhugasama þá er best að hafa samband við Örn beint með því að senda skilaboð í gegnum heimasíðuna http://skata.is/, á netfangið info@skata.is. eða senda skilaboð á Facebook-síðunni Skata.

„Í kjölfarið kemur fólk í heimsókn á verkstæðið mitt hérna í Vesturbænum og kaupir stólana beint frá býli. Epal-kommar eru líka velkomnir, þótt það sé skýrt tekið fram að innkaupastjórar ríkisstofnana fái engan sérstakan afslátt,“ segir Örn og hlær.

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum