fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Kynning

Reykjavík Digital – sérfræðingar í vefsíðugerð

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Mánudaginn 26. nóvember 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Reykjavík Digital er ungt og framsækið fyrirtæki sem sérhæfir sig í WordPress-vefsíðugerð. Okkur finnst afar spennandi að vinna með WordPress fyrst og fremst vegna þess að það er Open-Source og kostar ekki neitt. Í dag keyrir WordPress u.þ.b. 30% af öllum vefsíðum á internetinu og er því langstærsta vefumsjónarkerfi í heiminum.

Á bak við Reykjavík Digital er öflugt teymi sem hefur gífurlega mikla reynslu í WordPress og vefsíðugerð. Gunnlaugur Arnar Elíasson, sérfræðingur í netmarkaðssetningu og einn eigenda Reykjavík Digital, segir fyrirtækið smíða fallega, leitarvélavæna og skilvirka vefi sem virka hnökralaust í öllum tækjum og eru hannaðir til að selja vörur eða þjónustu. Reykjavík Digital vinnur með smáum sem stórum viðskiptavinum og er ávallt opið fyrir nýjum verkefnum.

Hvað þarf að hafa í huga þegar þú kaupir vefsíðu ?

Það er margt sem þarf að hafa í huga þegar farið er út í að kaupa nýja vefsíðu. Vefsvæðið þitt er það mikilvægasta sem þú hefur til að ná til þíns markhóps og því skal vanda vel til verks áður en farið er út í vefsíðugerð. Hér koma fjórir einfaldir punktar sem geta aðstoðað þig áður en þú kaupir þér nýja vefsíðu.

  1. Val á vefumsjónarkerfi
    Þegar farið er út í nýja vefsíðu skiptir val á vefumsjónarkerfi miklu máli. Hér er mikilvægt kynna sér hvaða kerfi eru í boði, hvaða kerfi hentar þínum vef svo vefurinn uppfylli þínar kröfur og markmið. Reykjavík Digital notar eingöngu Open Source-vefumsjónarkerfi sem þýðir að við læsum þig ekki inni í okkar eigin kerfi. Þannig að ef þú „fílar“ ekki eitthvað við okkur, þá ertu ekki bundinn þjónustunni okkar.
  2. Leitarvélabestun/SEO
    Það er ekki sjálfgefið að þótt þú greiðir fyrir fallega vefsíðu að umferðin í gegnum hana aukist af sjálfri sér. Ef leitarvélarnar skilja ekki nýju vefsíðuna þína er mjög ólíklegt að þú munir birtast ofarlega á leitarvélum eins og Google. Við hugsum til leitarvélanna, hvort þær skilji vefina okkar og hvað þeim finnst um þá. Við vitum hvernig leitarvélarnar hugsa og hvað þær vilja sjá.
  3. Vefhýsing
    Það finnst engum gaman að bíða. Ef nýja vefsíðan þín er lengi að hlaða sig þá hafa notendur ekki þolinmæði til að skoða vefinn þinn nema af algjörri nauðsyn. Leitarvélar verðlauna vefsíður sem eru leiftursnöggar og því er val á vefhýsingu einnig mjög mikilvægur liður í því að setja nýjan vef í loftið. Við aðstoðum okkar kúnna með val á vefhýsingu.
  4. Viðhald á vefsíðu
    Get ég breytt efninu á vefnum eða þarf ég að greiða fyrir hvert skipti sem ég vill breyta einhverju? Þetta er enn ein ástæða fyrir því að Reykjavík Digital notar einungis WordPress. Vefumsjónarkerfið er einfalt og þægilegt í notkun og okkur þykir einstaklega gaman að sjá hvað það kemur viðskiptavinum okkar sífellt á óvart hversu auðvelt það er að stjórna innihaldi WordPress.

Vefsíður

Við viljum vita allt um fyrirtækið þitt áður en við setjum upp nýja vefsíðu. Við elskum að rýna í gögn, skoða heimsóknartölur og fylgjast með hvernig notandinn hegðar sér á netinu. Gott vefsvæði á að uppfylla væntingar notenda og birta viðeigandi upplýsingar á réttum stað og réttum tíma. Við tryggjum að þetta verði að veruleika.

 

Netverslun

Lykilatriði í góðri netverslun er að það sé einfalt að versla á netinu. Viðskiptavinir eiga að geta fundið vöruna sem þeir leita að fljótt og örugglega. Ferðalagið frá vörulýsingunni yfir í að ljúka við pöntun þarf að vera stutt og áreynslulaust. Ef þú ert að hugsa um að setja vefverslun í loftið þá erum við rétta fólkið til að tala við.

Viðbætur og tengingar

Ef lausnin sem þú leitar að krefst sérsniðinnar virkni getum við þróað hana með þér. Forritarar okkar eru vanir að byggja upp flókin verkefni frá grunni og nota nýjustu staðla fyrir hönnun og þróun í WordPress.

Ef fyrirtækið þitt hefur áhuga á að fara yfir vefmálin þá er hægt að hafa samband við okkur í gegnum síma 781-2000 eða senda okkur póst á hallo@reykjavikdigital.is

Einnig er hægt að kynna sér betur þjónustu Reykjavík Digital á https://reykjavikdigital.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum