fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Kynning

Ilmvörur.is: Ilmandi gjafavörur

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 6. október 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ilmvörur.is er tveggja ára gömul, fjölskyldurekin vefverslun sem býður upp á fallegar og ilmandi gjafavörur. Má þar nefna ilmkerti, sápur, olíur, ilmkorn og margt fleira. Á næstu vikum eru jólavörurnar væntanlegar í verslunina en nú þegar eru komin fallega skreytt jólakerti. Einnig eru til sölu fallegir kertastjakar og ýmislegt annað sem fylgir kertum.

„Vinsælustu vörurnar hérna eru líklega flöt, handunnin og handmáluð kerti sem ég byrjaði að taka inn í fyrra. Þessi kerti eru unnin í Litháen og eru feykilega vinsæl,“ segir Ásvaldur Friðriksson, eigandi verslunarinnar.

„Jólakertin okkar eru síðan bæði flöt og píramídalaga,“ bætir Ásvaldur við og segir okkur síðan frá sápunum sem eru einstaklega vandaðar og vel ilmandi: „Sápurnar eru búnar til úr hreinum olíum, ilmolíum og ilmkjarnaolíum. Síðan erum við líka með ilmolíur í baðið og ilmolíulampa og mikið úrval af reykelsum. Auk þess erum við með ilmkorn sem eru sérhönnuð fyrir hvert rými heimilisins sem þar með verður allt vel ilmandi.“

Ilmvörur.is bjóða upp á hagstætt verð og góða þjónustu. Pantanir eru sendar hvert á land sem er. „Ef við fáum pöntun fyrir hádegi fer hún samdægurs frá okkur á pósthúsið. Ef hún kemur eftir hádegi fer hún frá okkur næsta dag,“ segir Ásvaldur en heimsendingarkostnaður fellur niður ef keypt er fyrir 5.000 kr. eða meira. Sendingarkostnaður fyrir minni viðskipti er síðan aðeins 600 kr. á pakkann.

Allar frekari upplýsingar er að finna á vefsíðunni ilmvorur.is þar sem vefverslunin er einnig. Þar er þægilegt að gera hagstæð kaup á fallegri, smekklegri og vel ilmandi gjafavöru.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum