fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Kynning

SKYN er bylting: Eins og að vera ekki með smokk

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 28. október 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Umræðan um smokkanotkun er enn allt of mikið tabú og því miður hefur kynsjúkdómatilfellum fjölgað mjög mikið hér á landi undanfarin ár. Við erum til dæmis með einn mesta fjölda klamidíu-smits í heiminum og kynsjúkdómar sem voru nánast horfnir eru farnir að stinga upp kollinum aftur, til dæmis sárasótt. Of lítil smokkanotkun er stór orsakavaldur hér,“ segir Jón Guðmundsson hjá innflutningsfyrirtækinu Nordica ehf. sem flytur inn hina byltingarkenndu SKYN-smokka.

SKYN-smokkarnir komu á markað í ágúst hér á landi og margir vilja meina að með tilkomu þeirra sé skrifaður nýr kafli í sögu kynsjúkdóma- og þungunarvarna: „Sagt hefur verið að SKYN sé ein mesta bylting á smokkamarkaði síðan smokkurinn var uppgötvaður, þar sem efnablandan sem var þróuð í þennan smokk líkist húð og maður finnur vart fyrir því að smokkurinn sé til staðar. Þeir sem áður hefur þótt óþægilegt að nota smokk munu ekki upplifa það með SKYN,“ segir Jón.

Latex-ofnæmi: Afar óþægilegt og upp í að vera lífshættulegt

Annar afar mikilvægur eiginleiki SKYN-smokkanna er sá að þeir eru latex-fríir. Afar lítið er um latex-fría smokka á markaðnum. „Latex-ofnæmi er orðið miklu útbreiddara vandamál en áður þekktist en orsökin kann að vera aukin greining á því. Bæði karlar og konur geta verið með latex-ofnæmi sem gerir þeim ókleift að nota latex-smokka. Ég þekki dæmi um konu sem hélt að hún væri að fá þvagfærasýkingar eftir hvert skipti sem hún stundaði kynlíf og var alltaf á sýklalyfjum. Svo kom í ljós að erting vegna snertingar við latex kallaði fram þessi ofnæmisviðbrögð,“ segir Jón.

Í grein á vef Astma- og ofnæmissamtakanna kemur fram að latex-ofnæmi sé tvíþætt, annars vegar snertiofnæmi sem er hvimleitt og hins vegar bráðaofnæmi sem getur verið lífshættulegt. Af þessum ástæðum eru viðbragðsaðilar á borð við sjúkraflutningafólk og lækna hættir að nota latex-hanska við störf sín.

Gamlar smokkakvartanir hverfa

„Við bjóðum upp á fjórar gerðir af latex-fríum smokkum og verksmiðjan þar sem þeir eru framleiddir meðhöndlar ekkert latex þannig að engin hætta er á að framleiðslan geti innihaldið latex fyrir slysni. Framleiðendur SKYN hafa hannað glænýtt efni til notkunar í þessa framleiðslu, polyisoprene. Það gerir smokkana áþekka húð í viðkomu og eykur gífurlega næmni við samfarir svo tilfinningin er sú að maðurinn sé ekki með smokk,“ segir Jón.

Gamlar kvartanir um smokkanotkun, óþægindin af þeim, daufari unaðstilfinningu og hugsanlega ofnæmi, eiga ekki við lengur.

SKYN-smokkarnir eru til sölu í öllum verslunum Lyfju á landinu, öllum verslunum Heilsuhússins og Iceland verslunum um land allt. Nánari upplýsingar um sölustaði sem og margs konar fróðleik um þessa byltingarkenndu smokka er að finna á vefsíðunni feeleverything.is.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum