fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Kynning

Nudd og vellíðan: Nudd er frábær jólagjöf

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 14. október 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nudd er mjög góð leið til að slaka á og endurnærast bæði líkamlega og andlega. Nudd var m.a. notað af Grikkjum og Rómverjum til forna og kunnu þeir vel að meta áhrif þess. Sjálfur Júlíus Sesar er sagður hafa krafist þess að fá nudd daglega til að halda líkamlegu og andlegu jafnvægi. Líf margra í dag er hins vegar uppfullt af streitu og áreiti. Símhringingar, tölvupóstur, samfélagsmiðlar, fréttir, umferðin, vinnan, skólinn, allt veldur þetta streitu og þreytu. Það getur reynst þrautin þyngri að slíta sig frá þessum streituvöldum og finna tíma til að slaka á og endurnærast bæði líkamlega og andlega.

Birtingarmynd streitu og álags getur oft verið líkamleg einkenni s.s. vöðvabólga og verkir í baki, hálsi og herðum.

Gjafabréf í nudd er frábær gjöf fyrir öll tilefni, svo sem jólagjöf eða afmælisgjöf. Í nuddmeðferð er markmiðið að ná fullkominni slökun bæði andlega og líkamlega. Nuddarar hjá Nudd og vellíðan eru sérfræðingar í að finna streitu í líkamanum og losa um hana. Nudd eykur jafnframt blóðflæði til vöðva og vefja sem hefur margvíslegan ábata. Þetta er gert í rólegu og notalegu umhverfi þar sem viðskiptavinir eru einangraðir frá öllu ytra áreiti. Allt þetta hjálpar líkamanum og huganum til þess að slaka á, hvílast og endurnærast. Nudd og vellíðan býður upp á nokkrar tegundir af hágæðanuddi á sanngjörnu verði.

Slökunarnudd er meðal þess sem í boði er, en það er endurnærandi og slakandi nudd sem mýkir vöðva og dregur úr spennu í líkamanum. Slökunarnudd getur verið fimmtíu eða áttatíu mínútur.  Slökunarnudd er heilnudd sem þýðir að allur líkaminn er tekinn fyrir. Slökunarnudd hjá Nudd og vellíðan er einstakt að því leytinu til að hver meðferð er sérhæfð að þörfum hvers og eins viðskiptavinar. Þannig fá engir tveir viðskiptavinir nákvæmlega sömu meðferðina. Starfsfólk Nudd og vellíðan býr yfir margra ára reynslu og er sérfræðingar í að finna nákvæmlega hvað hver og einn viðskiptavinur hefur þörf fyrir.

Fyrir þá sem ekki hafa mikinn tíma aflögu er einnig í boði partanudd, sem er aðeins 30 mínútur. Í partanuddi er lögð áhersla á ákveðin svæði og líkamshluta eftir þörfum hvers og eins.

Lúxusmeðferðin er svo steinanudd. Steinanudd er alltaf áttatíu mínútur að lengd. Í steinanuddi eru sérstakir steinar notaðir til að hita lykilpunkta á líkamanum, til að slaka á vöðvum og auka blóðflæði. Sérstakri nuddtækni er síðan beitt samhliða þessu. Steinanudd er gott fyrir þá sem vilja fá djúpa vöðvaslökun án þess að föstum strokum sé beitt.

Nudd og vellíðan býður falleg gjafabréf í nudd á hagstæðu verði. Gjafabréfin er hægt að panta á vefsíðu nuddstofunnar, nuddogvellidan.is/kaupa-gjafabref, og eru þau yfirleitt tilbúin til afgreiðslu samdægurs.

Nudd og vellíðan er til til húsa að Hlíðasmára 2, Kópavogi. Nánari upplýsingar, tímabókanir og gjafakort eru á vefsíðunni nuddogvellidan.is. Einnig er hægt að panta með tölvupósti á netfanginu nudd@nuddogvellidan.is og fá nánari upplýsingar í síma 788-0070.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum