fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Kynning

Klæðskeralistin í öndvegi: Gefðu sérsniðna jólagjöf

Kynning
Kynningardeild DV
Sunnudaginn 14. október 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Suitup Reykjavik er ein mest spennandi herrafataverslun Reykjavíkur í dag. Verslunin sérhæfir sig í sérsaumuðum jakkafötum, skyrtum og yfirhöfnum í bland við vandaða aukahluti. Í sérsaumnum er mikil áhersla lögð á vönduð efni og fullkomið snið en þeir Egill og Jökull, eigendur Suitup Reykjavik, kaupa öll efni í jakkafötin og skyrturnar frá stærstu og virtustu ullarframleiðendum Ítalíu og Bretlands.

„Efnin kaupum við næstum öll frá Biella á Ítalíu en þar eru allir stærstu efnaframleiðendur Ítalíu með sínar verksmiðjur. Við leggjum mikla áherslu á að nota einungis hágæða efni og notum aldrei gerviefni eða ullarblöndur. Uppistaðan í efnunum sem við notum er áströlsk merinóull en við hana blandast oft kasmír, silki, hör og fleiri skemmtileg efni,“ segir Jökull Vilhjálmsson. Þeir félagar eru ungir menn, 26 og 27 ára, en hafa alla tíð haft brennandi áhuga á vönduðum fatnaði sem er mikilvægt í þessum bransa.

„Við leggjum mikla áherslu á vandað og fullkomið snið og eyðum miklum tíma í að fullkomna mælingarnar fyrir hvern og einn viðskiptavin. Við trúum því að fötin eigi að passa þér, en ekki öfugt og við sendum aldrei frá okkur flík nema bæði við og viðskiptavinurinn séum fullkomlega sáttir við sniðið.“

Að sögn Jökuls eru viðskiptavinirnir á öllum aldri og fjölbreyttur hópur. „Við afgreiðum allt frá fermingar- og brúðkaupsfötum yfir í vinnuföt,“ segir Jökull en köflótt og önnur mynstruð föt eru hvað vinsælust um þessar mundir.

Suitup Reykjavik býður ekki bara upp á sérsniðin jakkaföt og skyrtur, heldur afar vandaða skó frá bæði Spáni og Ítalíu og gott úrval aukahluta sem nær allir eru framleiddir á Ítalíu undir þeirra eigin merki. Hanskar, treflar, bindi, vasaklútar og fleiri aukahlutir prýða verslun Suitup Reykjavik að Grandagarði 9.

„Við erum með virkilega gott úrval af aukahlutum sem eru fullkomnir í jólapakkann. En okkar allra vinsælasta jólagjöf er án nokkurs vafa jakkafata- og skyrtugjafabréfin. Sá sem fær gjafabréfið að gjöf mætir síðan til okkar á Grandagarð og velur úr hundruðum efna, er mældur frá toppi til táar og hefur síðan tækifæri til að gera flíkina að sinni með ýmsum smáatriðum, s.s. vali á mismunandi krögum, tölum og fleiru.“

Gjafabréfin er hægt að panta beint af vefnum www.suitup.is og eru þau heimsend að kostnaðarlausu. Einnig er hægt að nálgast gjafabréfin í glæsilegri verslun Suitup Reykjavik að Grandagarði 9.

„Við erum nýlega búnir að opna hér nýja og betri Suitup Reykjavik á Grandanum, einu mest spennandi svæði Reykjavíkur. Við kunnum afar vel við okkur á Grandanum og fylgjumst spenntir með þeirri uppbyggingu sem mun eiga sér stað á svæðinu á næstu mánuðum og árum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum