Nýjasta myndinn í The Conjuring seríunni, The Nun, var frumsýnd í Sambíóunum síðastliðinn föstudag og voru Sambíóin Kringlunni með sérstakar miðnætursýningar á myndinni þar sem starfsfólk klæddi sig upp sem djöflanunnur og leyfði áhorfendum að taka myndir með sér.
Myndin fór beint á toppinn í Bandaríkjunum og víðar um helgina. The Nun fékk stórkostlega aðsókn hér á landi um helgina. Alls sáu 7.119 manns myndina en til samanburðar sáu 6.467 manns Lof mér að falla um helgina. Þetta er langstærsta opnun á myndum í The Conjuring seríunni hingað til.