Gúmmíbangsar á sælgætisbörum eru, með fullri virðingu, nokkuð gagnslaus fyrirbæri. Bragðast mörgum vel en eru ekki hollir. Um hárvítamínbangsana frá SugarBearHair gildir hins vegar allt annað: Þeir bragðast eins og góðir hlaupbangsar en jafnframt örva þeir hárvöxt og gljáa hársins, en minnka slit og fækka brotnum endum. SugarBearHair henta öllum hárgerðum en taka skal inn tvo bangsa á dag. Mælt er með 3–6 mánaða skammti ef þess er óskað að hárið síkki en flestir sjá strax mikinn mun á fyrsta mánuðinum. Ef hárið skortir ekki vítamín sést árangur fyrr en ella.
SugarBearHair-bangsarnir eru settir saman úr vísindalega prófuðum efnum og þeir eru framleiddir í verksmiðjum í Bandaríkjunum eftir stöðlum bandaríska lyfja- og matvælaeftirlitsins. Aðeins er notast við bestu fáanlegu innihaldsefni sem tryggja að varan er örugg og hún virkar.
Helstu innihaldsefni: Virku innihaldsefnin í jurtavítamíninu eru A-, C-, D- og E-vítamín, B6-vítamín, fólinsýra, B12-vítamín, biotin, pantótensýra, joð, sink, kólín og inositol. Þessi efni valda því að heilbrigt hár tekur að vaxa inni í líkamanum. Hlaupbangsarnir eru síðan framleiddir úr náttúrulegum berjabragðefnum.
Þessir hárvænu bláu gúmmíbangsar hafa slegið rækilega í gegn um allan heim og njóta mikilla vinsælda hjá frægu fólki á borð við Kim Kardashian, Kylie Jenner og Courtney-systrum sem hrósa þeim óspart á samfélagsmiðlum.
Það er fyrirtækið Regalo sem flytur inn SugarBearHair. Fríða Rut Heimisdóttir, eigandi Reglao, segir reglulega vítamíninntöku vera nauðsynlega fyrir fallegt og heilrbigt hár: „Bangsarnir eru svo bragðgóðir að þú hlakkar til að taka þá inn. Auk þess lykta þeir vel og innihalda bara heilsusamleg efni. Ef hárið skortir engin vítamín þá sérðu árangur fyrr,“ segir Fríða.
Útsölustaðir SugarBearHair-bangsanna eru fjölmargir og yfirlit yfir þá er á vefsíðunni regalo.is.