fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Kynning

Skúli Craftbar – Frábær stemning og Bao Bun-vagninn á Fógetatorgi

Kynning
Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 17. ágúst 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skúli Craft Bar við Fógetagarðinn er þekktur fyrir mikið úrval af bjór og er vinsæll og smekklegur bar.

Á Menningarnótt verður frábær stemning, en Happy Hour er allan daginn frá kl. 12 og til lokunar.

Bao Bun-vagninn er staðsettur beint fyrir utan barinn. Hann er auðvitað ætlaður hverjum sem er en gestir á Skúla Craft Bar geta haft matinn úr vagninum með sér inn á barinn og snætt hann eða pantað matinn þar inni og starfsfólkið nær í hann út í vagn.

Bao Bun er heiti á kínverskum soðbrauðum en þau eru á boðstólum í vagninum og er hægt að fá þau með ferns konar fyllingu: Pulled pork, nautakjöti, þorski og sveppum. Síðan er alltaf kimchi, gúrkur, sriracha mæjónes, steiktur skalottlaukur og kóríander með í brauðinu. Enn fremur er boðið upp á djúpsteiktar sætar kartöflur í vagninum.

Vagninn er staðsettur á Fógetatorginu fyrir framan Fógetagarðinn við Aðalstræti og er opinn frá 12 á hádegi og langt fram á kvöld. Borð og stólar eru við vagninn og hægt að snæða þar þegar vel viðrar, taka matinn með sér eða fara með hann inn á Skúla Craft Bar og fá sér góðan drykk með.

En það er líka hægt að panta vagninn á útihátíðir og í ýmiss konar samkvæmi utandyra. Vagninn er þá dreginn með bíl á staðinn og þar þarf að vera hægt að tengja hann við rafmagn. Vagninn er fallegur og því prýði að honum í öllum samkvæmum og hátíðum utandyra og nærvera hans skapar skemmtilega stemningu. Kínversku soðbrauðin með hinum ljúffengu fyllingum þykja líka afar bragðgóð og gestir í útisamkvæmum eða á útihátíðum kunna vel að meta að fá slíkan mat ferskan, lagaðan á staðnum.

Til að panta Bao Bun-vagninn eða fá nánari upplýsingar er gott að hringja í Skúla Craft Bar í síma 519-6455, senda skilaboð á netfangið info@skulicraftbar.is eða senda skilaboð á Facebook-síðunni Skúli Bao Bun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum