Veitingastaðurinn Viðvík var opnaður í júlí árið 2017 og er í gullfallegu nýuppgerðu húsi við þjóðveginn á Hellissandi. Eigendurnir eru bræðurnir Gils Þorri, yfirmatreiðslumaður í Viðvík, og Magnús Darri, og makar þeirra, Aníta Rut Aðalbjargardóttir og Helga Jóhannsdóttir. Foreldrar Gils og Magnúsar, þau Kristín Gilsfjörð og Sigurður V. Sigurðsson, hjálpuðu til við uppbyggingu hússins sem er upprunalega frá árinu 1942.
Fallegt hús og einstaklega fallegt umhverfi í kringum veitingastaðinn kallar á nokkuð fína matreiðslu. „Við ákváðum að fara ekki þessa hefðbundnu leið veitingastaða við þjóðveginn, að bjóða upp á hamborgara, pítsur og hálfgerðan skyndimat, heldur vildum við bjóða upp á öðruvísi upplifun. Við erum með lítinn, hnitmiðaðan matseðil með gæði hráefna í fyrirrúmi og reynum að breyta honum nokkuð reglulega og nýtum einnig hráefni úr nærliggjandi umhverfi eftir bestu getu. Við erum staðsett alveg við sjóinn og fáum við úr honum þorsk, bláskel, hörpuskel og fleira. Hraðfrystihús Hellissands er hér rétt hjá okkur og sjá þau okkur fyrir gæðahráefni,“ segir Gils.
Gott úrval drykkja er líka á staðnum, vín, kokteilar og íslenskar bjórtegundir. Starfsfólk veitir góðfúslega ráðgjöf um heppilega drykki sem henta hverjum og einum.
Gestirnir á Viðvík eru, að sögn Gils, skemmtileg blanda af erlendum og innlendum ferðamönnum og heimafólki. „Heimamenn, innlendir og erlendir ferðamenn eru farnir að veita okkur meiri athygli eftir að við höfum skapað okkur sess fyrir gæði í matreiðslu og þjónustu,“ segir Gils en Viðvík hefur fengið mjög góðar umsagnir. „Fólk hrósar ekki síður þjónustunni hér en matnum. Við erum líka fjölskyldustaður og kappkostum að taka vel á móti fólki, láta því líða vel hér og kveðja það alúðlega líka,“ segir Gils, en hann og aðrir eigendur staðarins eru himinlifandi með hvað vel hefur gengið og hversu góðar móttökurnar hafa verið fyrsta ár veitingastaðarins.
Það er ánægjuleg upplifun að eiga stund á veitingastaðnum Viðvík. Að snæða góðan mat í fallegu húsi og njóta góðrar þjónustu er alltaf ánægjulegt, en gullfalleg náttúra allt í kring magnar enn upplifunina. „Við höfum sjóinn og fjörðinn á aðalhlið hússins og hinum megin í salnum blasir Snæfellsjökullinn við,“ segir Gils og ljóst er að umhverfið gæti ekki verið fallegra.
Viðvík er fremur lítill veitingastaður, tekur 30-40 manns í sæti, og vegna vinsælda staðarins er mælt með því að borð séu pöntuð fyrirfram, í síma 436 1026. Viðvík er kvöldverðarstaður og er opið frá 17 til 22 þriðjudaga – laugardaga og 17 til 21 sunnudaga.
Sjá nánar á Facebook-síðu Viðvík Restaurant og öðrum miðlum.