fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Kynning

Við Voginn: Eitthvað fyrir alla

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 1. júlí 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dýrlegt útsýni er frá veitingastaðnum Við Voginn á Djúpavogi en þaðan horfir maður yfir höfnina og út á Berufjörð. Ekki spillir fyrir að veðrið hefur leikið við heimamenn undanfarnar vikur og margir gestir veitingastaðarins nýta sér því útisvæðið sem staðurinn býður upp á en þar geta um 20 manns setið og snætt, á meðan salurinn inni tekur 80 manns.

Við Voginn er mjög líflegur og vinsæll veitingastaður sem býður upp á fjölbreyttan matseðil. Maturinn er pantaður við afgreiðsluborðið og starfsfólk kemur síðan með hann á borðið til gestanna.

„Fiskurinn er langvinsælastur hjá okkur og „fish and chips“ rennur ljúflega niður í gestina,“ segir Rán Freysdóttir, eigandi staðarins. Við Voginn er opinn frá 9 á morgnana til 9 á kvöldin og býður upp á morgunverð, hádegismat og kvöldmat. Ávallt er mikið að gera í hádeginu og vinnandi fólk á svæðinu nýtir sér óspart hádegisverðartilboðið:

„Við erum alltaf með gamlan klassískan heimilismat í hádeginu, þennan mat sem þú færð kannski hjá mömmu en er ekki lengur á mörgum heimilum. Til dæmis steiktur fiskur í raspi en við erum með fisk á hádegismatseðlinum lágmark tvisvar í viku. Svo eru það réttir eins og bjúgu, kótelettur, snitsel, mínútusteik, stundum jafnvel lifur. Það er alltaf eitthvað nýtt í hádeginu og fjölbreytnin mikil,“ segir Rán.

Við Voginn er vinsæll meðal ferðamanna, bæði innlendra og erlendra, enda kjörinn áningarstaður fyrir þá sem eiga leið um Austurland. „Við erum með eitthvað fyrir alla og erum mikill fjölskyldustaður. Við Voginn er líka kaffihús og við erum með alveg stórglæsilegt kaffiborð hérna þar sem við bjóðum upp á allt frá vegan-kökum upp í súkkulaðibombur. Við erum með einar níu tegundir af kökum núna og auk þess klassískt kaffibrauð á borð við ástarpunga, kleinur og hjónabandssælu.“

Við Voginn er með vínveitingaleyfi og fyrir marga er kjörið að fá sér bjór eða hvítvín með matnum. Fjölbreyttar bjórtegundir eru í boði, meðal annars kraftbjór frá Egilsstöðum og Breiðdalsvík.

Sjá nánar á Facebook-síðunni Við Voginn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum