Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur lagt fyrir ónefnda bílaleigu að endurgreiða konu, sem leigði bíl í 5 daga síðastliðið sumar, 430.000 krónur í viðgerðarkostnað sem hún var rukkuð um. Vildi bílaleigan meina að konan hefði valdið svo miklu tjóni á bílnum að svo há rukkun væri fyllilega réttlætanleg en konan sagði að eina tjónið sem sjá mætti á bílnum væri smávægileg dæld sem vart væri greinanleg nema á ljósmyndum.
Konan sagði í kæru sinni til nefndarinnar að þegar hún skilaði bílnum hafi bílaleigan fullyrt að tjón hefði orðið á framhurð hennar sem rekja mætti til vinds. Sagðist konan ekki hafa getað greint neitt tjón á bílnum með berum augum en af ljósmyndum sem teknar hafi verið við skilin hafi mátt greina smávægilega dæld. Engar verulegar skemmdir eða flögnun á lakki hafi þó sést. Andmælti konan þeirri fullyrðingu bílaleigunnar að tjón hefði orðið á framhurðinni eftir að hún hefði fokið upp vegna vinds, á meðan bíllinn var í hennar vörslu.
Sagðist konan hafa orðið við kröfu bílaleigunnar um að greiða umræddar 430.000 krónur sem innborgun inn á viðgerðarkostnað en hafi gert ráð fyrir að fá þær endurgreiddar eftir að viðgerð hefði farið fram.
Bílaleigan sendi konunni tjónamat sem hljóðaði upp á um 567.000 krónur sem konan sagði allt of háa upphæð miðað við hversu lítil dældin væri. Hluti af kostnaðinum hefði verið nýir varahlutir og málun á allri bifreiðinni sem konan taldi óþarfa.
Gögn
Bílaleigan vildi meina að málningarvinnan hefði verið nauðsynleg þar sem um dæld í yfirbyggingu bílsins hefði verið að ræða og skipta hafi þurft um lamir í framhurðinni. Konan sagðist hafa farið fram á að fá afhent gögn sem sönnuðu þetta en ekki hafi verið orðið við því.
Í andsvörum bílaleigunnar kom fram að tjónið hefði orðið eftir að framhurðin hefði skollið á frambretti bílsins, í vindi og það hafi verið augljóst þegar konan hafi skilað bílnum. Bílaleigan vildi ennfremur meina að tjónamatið væri fyllilega löggilt, að trygging sem konan keypti næði ekki yfir tjónið og að það hefði komið skýrt fram í skilmálum fyrirtækisins sem konan hafi samþykkt við undirritun leigusamnings.
Þak
Í niðurstöðu kærunefndar vöru- og þjónustukaupa er bent á að samkvæmt skilmálum þeirrar tryggingar sem konan hafi keypt hjá bílaleigunni hafi hún borið takmarkaða ábyrgð á tjóni umfram 150.000 krónur. Hámarksgreiðsla hennar vegna tjóns sé þar af leiðandi 150.000 krónur. Í fyrirliggjandi samningi hennar við bílaleiguna sé ekki að finna nánari upplýsingar um uppgjör vegna tjóns eða hvernig fjárhæð rauntjóns skuli metin.
Nefndin segir ljóst að skilmálar bílaleigunnar séu ekki í samræmi við þá meginreglu í íslenskum rétti að þeim aðila sem setji fram kröfu beri að sýna fram á þær staðreyndir sem krafan byggi á, þ.e. sá sem haldi fram tiltekinni staðreynd beri sönnunarbyrðina fyrir henni. Skilmálar leigunnar geri hins vegar ráð fyrir því gagnstæða, að leigutaki beri hlutlæga ábyrgð á tjóni á bílum leigunnar.
Sönnunarbyrðin sé þar með alfarið lögð á herðar neytandans. Þá liggi ekki fyrir nein gögn, sérfræðirannsókn eða nokkurt annað sem sannreyni að svo verulegt tjón hafi orðið á bifreiðinni að það réttlæti að rukka konuna um 430.000 krónur.
Telur nefndin þessa skilmála bílaleigunnar hafa í för með sér verulegt ósamræmi í réttindum og skyldum samningsaðila, neytendum í óhag og stríði þar með gegn góðum viðskiptaháttum. Skilmálarnir samræmist þar af leiðandi ekki lögum um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga.
Nefndin segir einnig ljóst að bílaleigan hafi ekki leitt neinar líkur að því að konan hafi valdið tjóni á bílnum með saknæmri háttsemi og að hurðin hafi skemmst eftir að hafa fokið upp.
Þar af leiðandi beri bílaleigunni að endurgreiða konunni þessar 430.000 krónur sem hún var rukkuð um.