Innlent

Banaslys á Suðurlandi

Mynd

Banaslys varð á Þrengslavegi í gærkvöldi þar sem einn einstaklingur lést.

Þetta kemur fram í nýrri tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.

Í tilkynningunni segir að laust fyrir klukkan 23 í gærkvöldi hafi lögreglu borist tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Þrengslavegi austan Litla-Sandfells þar sem bifreið hafi hafnað utan vegar og oltið. 

Tveir voru í bílnum og reyndist annar án lífsmarka þegar að var komið. Endurlífgunartilraunir reyndust árangurslausar. Hinn var fluttur á Landspítala háskólasjúkrahús til skoðunar og aðhlynningar.

Engar upplýsingar um hinn látna koma fram í tilkynningunni og segir að lokum að tildrög slyssins séu til rannsóknar hjá rannsóknadeild lögreglunnar á Suðurlandi auk rannsóknanefndar samgönguslysa. Ekki sé unnt að veita nánari upplýsingar um slysið að svo stöddu.