Þorrablótið í Álftafirði, nálægt Djúpavogi, árið 1996 gekk ekki áfallalaust fyrir sig. Fólk var keyrt í rútu heim í Djúpavog eftir skemmtunina en í rútunni svaf einn maður á þrítugsaldri ölvunarsvefni. Þegar hann var vakinn brást hann hinn versti við, gekk berserksgang og lamdi fólk. Ökumaður náði að forða sumu fólki út úr rútunni en ók því næst niður að bryggju til að ná í liðsauka til að yfirbuga manninn. Því næst var manninum komið í varðhald lögreglunnar á Fáskrúðsfirði. Margir voru sárir og marðir eftir manninn. Einn stóð uppi með brotnar tennur og falskur gómur manns á áttræðisaldri var brotinn.