Laugardaginn 15. júlí árið 1950 var haldin hæfileikakeppni flugfreyja í London og tóku fimmtán stærstu flugfélög Norðurálfu þátt. Keppninni lauk með sigri íslenska keppandans, Margrétar Guðmundsdóttur, 22 ára gamallar flugfreyju hjá Loftleiðum. Keppt var í öllum þeim kostum sem úrvalsflugfreyja verður að hafa, svo sem lipri og alúðlegri framkomu, snyrtimennsku, þokka og stillingu ef eitthvað ber út af. Í Morgunblaðinu segir: „Ekki var um fegurðarsamkeppni eingöngu að ræða. Málakunnátta var t.d. einnig tekin til greina.“ Keppninni var sjónvarpað í Bretlandi og töluvert fjallað um hana í erlendum blöðum.