Nicolae Ceausescu, leiðtogi rúmenska kommúnistaflokksins, og eiginkona hans Elena komu í opinbera heimsókn til Íslands 12. október árið 1970. Með þeim í för voru ýmsir erindrekar og blaðamenn. Ólíkt flestum slíkum heimsóknum varði hún þó ákaflega stutt, aðeins tvær klukkustundir, en föruneytið hélt svo vestur um haf til Bandaríkjanna. Kristján Eldjárn forseti bauð Ceausescu-hjónunum að koma til Bessastaða þar sem Nicolae hélt ræðu. Hann hafði einungis verið við völd í fimm ár og þótti víðsýnni og framsæknari en flestir aðrir leiðtogar ráðstjórnarríkjanna. Á níunda áratugnum hafði taflið snúist við og misheppnuð efnahagsstjórn hans leiddi til hungursneyðar í landinu. Þegar kommúnisminn hrundi í Austur-Evrópu voru hjónin bæði tekin af lífi.