Laugardagskvöldið 7. janúar árið 1967 sást dularfullt fyrirbrigði á lofti yfir Reykjavík. Um tvær tímasetningar var að ræða, klukkan hálf átta og hálf ellefu. Fjöldi fólks sagðist hafa séð einkennilegan sporöskjulaga og glóandi hlut, þakinn hringlaga blettum og ljósglampa. Fannst fólki eins og hlutnum hafi verið stýrt af einhverjum. Í bæði skiptin sveimaði hluturinn í nokkrar mínútur yfir fólkinu og þaut svo lóðrétt upp í himinhvolfið. Engin flugumferð var yfir Reykjavík á þessum tíma og skyggni ágætt samkvæmt Veðurstofunni.
Sigurgeir Sigurjónsson hæstaréttarlögmaður sá hlutinn og sagði við Morgunblaðið: „Ég þaut út og sá lýsandi hnött ekki mjög hátt á lofti – það er ekki gott að giska á fjarlægðir í lofti að kvöldi til þegar ekkert er til að miða við – en þessi líkami, sem þarna var á ferðinni nálgaðist jörðu, nálgaðist Reykjavík, og stækkaði eftir því sem hann kom nær.“ Enn fremur: „Þessi líkami minnir mig einna helzt á þær myndir, sem ég hef séð af fljúgandi diskum.“
Henrik Biering kaupmaður og Magnús Ólafsson læknir, og fjölskyldur þeirra, sáu einnig fyrirbærið. Sögðu þeir að á því hefðu verið gluggar og eins konar hali aftur úr.
Haft var samband við Pál Bergþórsson veðurfræðing sem taldi að fyrirbærið gæti hafa verið speglun hlutar fyrir utan sjóndeildarhring. Slíkt gæti gerst við svokölluð hitahvörf.
Það voru ekki aðeins almennir borgarar sem tóku eftir fyrirbærinu. Halla Guðmundsdóttir hjá Veðurathugunarstöðinni sagðist hafa séð rauðleitt ljós fara í átt að Sjómannaskólanum, ekki mjög hátt á lofti, og taldi að mögulega hefði þetta verið þyrla. Fólk í flugturninum sá ljósin einnig. Það fékkst síðar staðfest frá varnarliðinu að engin þyrla var á lofti þetta kvöld. Morgunblaðið velti því fyrir sér hvort um raunverulegan fljúgandi furðuhlut (UFO) væri að ræða.
Degi seinna greindi Alþýðublaðið frá því að geimverur hafi hvergi komið nálægt þetta kvöld. Þar segir:
„Uppgötvuðu menn svo, sér til mikillar skelfingar, að þetta „dularfulla fyrirbrigði“ reyndist vera loftbelgsræksni og nokkrir strákpattar höfðu sett eld í svo hann logaði allur að innan, er hann komst á loft. Hafa þeir „geimsjáendur“ sjálfsagt hrokkið upp við vondan draum og haft síðan hljótt um sig frá því.“