Mikið er rætt um vanda Landspítalans. Ráðherrar í ríkisstjórn og þeirra flokksbræður og -systur segja spítalann hafa fengið nóg af peningum. Vandinn sé rekstrarlegur. Stjórnarandstaðan segir ráðherra vísvitandi hagræða tölum í bókhaldinu til að láta líta út eins og spítalinn hafi fengið meira fé en raun er. Á meðan ráðherrar og þingmenn þrasa um tölur og aukastafi, núll og kommur, versnar ástandið með hverjum deginum. Mistök hafa kostað fólk lífið og nokkuð víst að syrgjendum er sama hvort rifist er um einn milljarð eða fjóra. Bókhaldið nefnilega bjargar ekki lífum heldur starfsfólk spítalans. Væri ekki réttara að hlusta á hjálparkall þeirra í staðinn fyrir að grúfa höfðinu ofan í Excel-skjal?