Búist hafði verið við miklum verkföllum í vor en þeim var afstýrt. Hafa sumir sagt að hin nýja verkalýðsforysta hafi beygt sig vegna falls WOW og vandræða í ferðaþjónustunni. Miðað við nýja langtímasamninga á það ekki við rök að styðjast. Þvert á móti stendur forystan uppi sem sterkur málsvari verkafólks og hefur hrist af sér þá umsögn að hún sé óviðræðuhæf.
Ríkisstjórnin fagnar einnig. Samningarnir koma á besta tíma eftir áfall síðustu viku. Nú má búast við rólegri tímum út kjörtímabilið. Samtök atvinnulífsins geta ágætlega við unað líka þó að þau hafi þurft að gefa eftir af kröfum sínum. Það sem mestu máli skiptir er að halda ró á markaðnum.