Á þriðjudaginn bar minnihluti borgarstjórnar fram tillögu um að fyrirhugaðar framkvæmdir við gróðurhvelfingu í Elliðaárdal yrðu lagðar í íbúakosningu. Tillagan var felld af meirihlutanum á þeim grundvelli að tillagan væri pólitísk. Eins hefur minnihlutinn farið fram á upplýsingar um hvaða fjársterku aðilar standa að baki framkvæmdunum og hver áætlaður kostnaður borgarinnar verður. Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, sagði í samtali við DV að Hollvinasamtök Elliðaárdals ætli nú að safna undirskriftum borgarbúa til að fá fram slíka kosningu, en bæði kjörnir fulltrúar og borgarbúar, ef nægilegur fjöldi undirskrifta fæst, geta farið fram á slíkar kosningar.
„Það er einhver ástæða fyrir því að þeir vilja ekki fá þetta í atkvæðagreiðslu,“ segir Vigdís.
Maður veltir því eðlilega fyrir sér hvers vegna borgarbúar megi ekki taka þátt í þessari ákvörðun, óttast borgin kannski að þessar framkvæmdir séu þvert á vilja Reykjavíkurbúa? Ef ekkert er að óttast, hvers vegna ekki að samþykkja slíka kosningu strax? Vissulega hlýtur það að valda Reykvíkingum áhyggjum þegar borgarstjórn hefur jafn takmarkaða trú á verkefninu og þetta gefur til kynna.