Hart er nú tekist á um eingreiðslur sveitarfélaga til þeirra starfsmanna sem ekki hefur verið samið fyrir í kjaraviðræðum. Orð eins og grimmd og skeytingarleysi hafa verið viðhöfð um samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna þeirra starfsmanna sem ekki fá slíkar greiðslur. Eingreiðslan mun vera nokkurs konar innborgun í þær kjarabætur sem samið verður um. Ekki mun það vera óþekkt að þegar kjarasamningar eru undirritaðir þá taki þeir gildi afturvirkt frá því að samningar urðu lausir. Uppsöfnuð kjarabót er síðan greidd út í einu lagi eða í nokkrum innborgunum. Í kjarasamningum er oftast er fundin lending sem aðilar beggja vegna borðsins eru álíka ósáttir við, enginn græðir sérstaklega á kostnað hins. Því er ekki að sjá að einhverjir starfsmenn séu að græða 105 þúsund króna eingreiðslu um mánaðamótin. Fremur er um að ræða starfsmenn sem fá uppsafnaðar kjarabætur greiddar um komandi mánaðamót, og svo starfsmenn sem bíða aðeins lengur. En sú greiðsla gæti þá endað með að verða hvort eð er hærri sökum lengri tíma án samninga.