fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024

Leiðinlegt fyrir Pólverja

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 19. júní 2018 10:55

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pólverjar á Íslandi eru á milli steins og sleggju þegar kemur að því hvað þeir eiga að horfa á eftir hádegi í dag. Á sama tíma og Pawel Bartoszek verður á sínum fyrsta borgarstjórnarfundi mun Pólland spila við Senegal á HM. Pawel segir þetta leiðinlegt á Fésbók:

„Mikið verður leiðinlegt fyrir alla Pólverja á Íslandi sem munu fylgjast með mér á fyrsta borgarstjórnarfundi nýkjörinnar borgarstjórnar að þurfa að missa af Pólland – Senegal sem er á sama tíma. Svona er lífið!“

Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, segir í athugasemd hjá Pawel:

„Það er ekki sleppt og haldið, en valið er þó einfalt að þessu sinni.“

Leiða má að því líkum að Hanna Katrín telji að Pólverjar hafi frekar áhuga á fótbolta en borgarfulltrúanum Pawel.

Sem betur fer byrjar leikurinn kl. 15 en borgarstjórnarfundurinn kl. 14. Pólverjar á Íslandi hafa því rúman klukkutíma til að ná Pawel áður en leikurinn byrjar.

 

Hér er hægt að horfa á útsendinguna úr Ráðhúsi Reykjavíkur, fundurinn byrjar kl. 14:00.

Hér er svo hægt að horfa á útsendinguna frá leik Póllands og Senegal, útsendingin hefst kl. 14:50 og leikurinn byrjar kl. 15:00.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“

Hvetur United til að horfa í óvænta átt: Harðhausinn aftur heim? – ,,Gæti smellpassað“
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“

Liverpool þarf að taka stóra ákvörðun í sumar: Er hann ekki nóg fyrir liðið? – ,,Þurfum að spyrja spurninga“
Fókus
Fyrir 9 klukkutímum

Læknar hafa áhyggjur af áberandi aukaverkunum Ozempic – Augljóst meðal elítunnar í Hollywood

Læknar hafa áhyggjur af áberandi aukaverkunum Ozempic – Augljóst meðal elítunnar í Hollywood
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“

Guardiola: ,,Þurfum að skoða það í lok tímabils“