Borgarlínunni hefur tekist að verða að einu helsta þrætuepli okkar Íslendinga, þá sérstaklega höfuðborgarbúa, á þessu ári. Þrátt fyrir það eru ekki einu sinni allir sammála hvað borgarlína er, halda enn margir að þetta sé einhverskonar lestarkerfi eða „monorail“. Af þeim sökum er hún vinsælt umfjöllunarefni skoðanapistla, það sem margir hafa tekið eftir er að drjúgur hluti skoðanapistla er með fyrirsögninni „Borgar línan sig?“. Létt hnyttni sem margir vilja bendla við sig.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, notaði þessa línu á Facebook í janúar. Nokkrum dögum síðar gerði Davíð Þorláksson, starfsmaður SA, slíkt hið sama. Í vikunni notaði Haukur Örn Birgisson golfari þessa fyrirsögn á bakþanka sína í Fréttablaðinu. Google sýnir svo að það var ofurbloggarinn Dr. Gylforce sem notaði þessa fyrirsögn fyrstur, var það á bloggfærslu í nóvember 2017.
Aðförin á Kjarnanum notaði svo fyrirsögnina Borgarlínan margborgar sig við hlaðvarp sitt í desember 2017, en þar var orðið borgar notað tvisvar.
Það er spurning með að leggja þessari fyrirsögn til að rugla ekki saman Dr. Gylforce, Sigmundi, Davíð og Hauki?