Björn Valur Gíslason, fyrrverandi varaformaður Vinstri grænna og þingmaður, birti fyrr í dag með furðulegri stöðufærslum íslensk stjórnmálamanns. Og þá er mikið sagt því af nógu er að taka.
Björn Valur veltir þó fyrir sér stærri spurningum en hvort það sé eðlilegt að borða hrátt kjöt. Hann gefur í skyn að jörðin sé flöt. Stöðufærsla Björn er vísast einhvers konar brandari en torskilin er hann.
„Ég er efasemdamaður að upplagi. Ég efast til dæmis um að jörðin sé hnöttur sem hvolfist um sjálfan sig og hringi sig um sólina. Finnst reyndar margt benda til þess að svo sé ekki. Ég er heldur ekki sannfærður um að tengsl séu á milli orsaka og afleiðinga. Mest af öllu efast ég samt um sjálfan mig. En það er líka öllum hollt að efast hóflega um sjálfa sig,“ skrifar Björn Valur þegar klukkan var að ganga níu í morgun.