Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, virtist standa keik í drottningarviðtali í sjónvarpsþættinum Kveik sem sýndur var á RÚV í vikunni. Talaði Agnes hún meðal annars um að fara í átak til að byggja upp traust og fyrirbyggja árásir á sig og þjóðkirkjuna. „Ég kalla það árásir þegar það er verið að tala um eitthvað sem er ekki rétt, það er verið hreinlega að ljúga upp á biskupinn og kirkjuna,“ sagði Agnes. Í sama viðtali segir Agnes að hún hafi ekki beðið um launahækkun, sem eru athyglisverð ummæli því að í desember 2015 sendi Agnes bréf á kjararáð þar sem hún biður um launahækkun. Er það svona sem á að hefja átak kirkjunnar til að byggja upp traust? Með því að fella niður boðorðið „Þú skalt ekki ljúga“?