Staksteinar Morgunblaðsins uppnefna Samfylkinguna, Pírata og Viðreisn reglulega sem „Samfylkingarflokkana“. Þessi lenska hefur tíðkast síðustu ár, fyrst voru það Björt framtíð og Samfylkingin, svo bættu þeir Pírötum við og svo tók Viðreisn við af Bjartri framtíð. Enda var það vægast sagt illa séð í Hádegismóum þegar einstaklingar hættu í Sjálfstæðisflokknum og fóru yfir í Viðreisn. Uppnefnið er kannski fortíðarþrá í tímann þegar flokkarnir voru að hámarki fimm. Það er áhugavert að nota þessa skilgreiningu ofan úr Hádegismóum á kannanir sem hafa birst síðustu daga. Samfylkingin mælist með rúm 20%, Píratar 14% og Viðreisn með 14%. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með svipað fylgi og Samfylkingin. Þetta þýðir að „Samfylkingarflokkarnir“ eru með meira en helmingi meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn. Spurning hvort Hádegismórar þurfi að safna saman „Sjálfstæðisflokksflokkum“ til að eiga roð í „Samfylkingarflokkana“.